Morgunhluti laugardags
Samstillið hjarta ykkar Jesú Kristi: Hin helga gjöf Barnafélagstónlistar
Útdráttur
Brasilía
Filippseyjar
Bandaríkin
Ég hef fundið gleði í því að tengjast öðrum heilögum á sameiginlegu tungumáli helgrar tónlistar. Og sérstaklega í einföldum söngvum Barnafélagsins hefur heilagur andi yfirstigið tungumálaörðugleika og fyllt hjarta mitt með sinni lágværu rödd. …
… Barnafélagstónlist er eitt ljúfasta verkfæri Guðs til að gróðursetja sáðkorn vitnisburðar í hjörtu yngstu lærisveina frelsarans. …
… Tónlist hefur ávallt verið kjarni þess að kenna börnum fagnaðarerindið. Barnafélagssöngvar geta orðið fyrsta andlega tungumál barns, því einfaldar og eftirminnilegar laglínur þeirra tjá sannleika fagnaðarerindisins. …
Barnafélagssöngvar geta líka verið áhrifamikið kennslutæki fyrir kenningaratriði. Sumir söngvar segja sögur af lífi og þjónustu frelsarans. Aðrir kenna um eiginleika hans, eins og trú hans, von hans og kærleika hans. Og allra helgustu söngvarnir vitna um óendanlega friðþægingu hans og elskuna sem þessi sáluhjálparathöfn ber með sér. …
… Söngur sem lærist við sex ára aldur hefur kraft til að dvelja með okkur – og getur komið aftur áratugum síðar á stundum ákvarðanatöku, freistinga, sorgar eða gleði. …
… Andinn getur notað tónlist til að rista eilífan sannleika á meyrt hjarta þeirra. Börn geta svo að endingu valið að stilla og snúa hjörtum sínum og lífi sínu að Jesú Kristi, með því að gera og halda helga sáttmála við hann. …
Kæru vinir, ég ber vitni um að Barnafélagssöngvar kenna eilífan sannleika og kenningu sem leiða okkur til Jesú Krists og fagnaðarerindis hans.