2025
Leggið ykkar af mörkum af heilum huga
Til styrktar ungmennum, nóvember 2025


Morgunhluti laugardags

Leggið ykkar af mörkum af heilum huga

Útdráttur

alt text

Þýskaland

Hala niður PDF-skjali

Það þarf einfaldlega sjálfsaga til að vera lærisveinn. …

… Trú okkar, sem er hollusta okkar við frelsarann, verður sterkari þegar hún er reynd gegn mótlætinu sem við stöndum frammi fyrir hér í jarðlífinu. Hún heldur út vegna þess að við höldum áfram að næra hana, við höldum áfram að beita henni markvisst og gefumst aldrei upp.

Ef okkur aftur á móti tekst ekki að nota trúna og sannfæringarkraft hennar með því að fylgja henni eftir, verðum við óvissari um það sem var okkur eitt sinn heilagt – óöruggari með það sem við eitt sinn vissum að væri sannleikur. …

Eldmóður vitnisburðar gærdagsins fær einungis hlýjað okkur svo lengi. …

… Gjafir okkar eflast og margfaldast aðeins þegar við notum þær. …

Það kann að vera að andlegar gjafir okkar séu ekki alltaf áberandi, en það þýðir ekki að þær séu síður mikilvægar. …

Við skulum því hvert og eitt skila okkar litla hlutverki. …

Munið að það er Jesús Kristur sem þegar framkvæmdi hið ofurmannlega verk þegar hann sigraði dauða og synd.

Hlutverk okkar er að fylgja Kristi. …

Þar sem trúin er veik, hefjist þá handa með von á Krist Jesú og mátt hans til að hreinsa og helga. …

Við vitum að erfiði okkar eitt og sér getur ekki gert okkur himnesk. Það getur þó gert okkur trygg og skuldbundin Jesú Kristi og hann getur gert okkur himnesk. …

… Við erum þakklát fyrir skrefin sem við tókum í gær, en við látum ekki staðar numið. Við vitum að við eigum enn langt í land, en við látum það ekki draga úr okkur kjark.

Það er kjarninn í því hver við erum – sem lærisveinar Jesú Krists.