Morgunhluti laugardags
Sælir eru friðflytjendur
Útdráttur
Brasilía
Ráðstefnuhöllin, Bandaríkjunum
Jesús stígur úr gröfinni, eftir Dan Burr
Við skulum skoða nánar þessa þrjá staði, þar sem nútíma Síðari daga heilagur stuðlar að friði.
Fyrst er það hjarta okkar sjálfra. …
… Fagnaðarerindi Jesú Krists nærir og samtengir þessa guðlegu eiginleika, þar með talið frið, í hjörtu okkar og blessar okkur í þessu lífi og því næsta.
Í öðru lagi, vekjum við frið á heimili okkar með því að nota aðferðir Drottins til að hafa áhrif á sambönd okkar hvert við annað: fortölur, umburðarlyndi, mildi, góðvild, hógværð og fölskvalaus ást. …
… Til að vera friðflytjendur, þá fyrirgefum við öðrum og byggjum aðra upp af ásetningi, í stað þess að rífa þá niður.
Í þriðja lagi, er það friðarvakning í samfélögum okkar. …
… Megum við velja í söfnuðum okkar og samfélögum að sjá hvert annað sem börn Guðs.
Í stuttu máli, þá legg ég fram boð. … Mynduð þið íhuga einnar viku, þriggja skrefa áætlun friðarvakningar?
-
Heimasvæði án deilna: Þegar deilur hefjast, staldrið þá við og byrjið upp á nýtt með vingjarnlegum orðum og gjörðum.
-
Stafræn brúarsmíð: Áður en þið birtið, svarið eða skrifið athugasemdir á netinu, skuluð þið spyrja hvort þetta muni byggja brú? Ef ekki, hættið við. Sendið ekki skilaboðin. Miðlið þess í stað góðvild. Birtið frið í stað haturs.
-
Bætið og sameinið á ný: Hver fjölskyldumeðlimur gæti einbeitt sér að stirðu sambandi til að biðjast afsökunar, þjóna, bæta og sameina á ný. …
Að stuðla að friði er kristilegur eiginleiki. …
Við uppfyllum guðlegt hlutverk okkar sem börn kærleiksríks himnesks föður er við kappkostum að verða friðflytjendur.