Síðdegishluti laugardags
Fjölskylduyfirlýsingin – orð frá Guði
Útdráttur
Bandaríkin
Ég ann fjölskylduyfirlýsingunni. … Yfirlýsingin er af guðlegum uppruna, svo við verðum að sýna henni þá lotningu sem orð Guðs verðskulda. …
Þegar hún var sett fram, samræmdist yfirlýsingin ekki sjónarmiðum margra í heiminum. Ekki þá. Ekki núna. Til eru þeir sem eru ósáttir við yfirlýsinguna um fjölskyldu, hjónaband og kyn. Sumir leggja til að kirkjan dragi hana til baka, endurskoði eða leggi yfirlýsinguna jafnvel til hliðar.
Eins og Hinckley forseti sagði, kæru bræður og systur, þá er yfirlýsingin um fjölskylduna, kenning. Þessar reglur eru ekki úr takti, en fullkomlega samstíga leiðum Drottins og sáttmálsvegi hans. Kenningar yfirlýsingarinnar voru opinberaðar af Drottni, Jesú Kristi, til postula hans, þá og nú. …
Þau sem hafa áhyggjur, vitið að þið eruð börn himneskra foreldra, þið eruð hluti af fjölskyldu himnesks föður. Enginn þekkir ykkur betur eða þykir vænna um ykkur en hann. Snúið ykkur til hans, úthellið hjarta ykkar fyrir honum, treystið honum og loforðum hans. …
Við finnum í fjölskylduyfirlýsingunni:
„Feðrum og mæðrum ber skylda til að hjálpa hvort öðru sem jafningjar.“
Jafningjar er orð sem skiptir máli. …
Þegar við lifum með einbeitt auglit á dýrð Guðs, virðum við hvert annað og styðjum hvert annað. …
Faðir okkar á himnum hefur séð okkur fyrir fjölskylduyfirlýsingunni til að leiða okkur heim til sín, hjálpa okkur að læra og fyllast kærleika, styrk, tilgangi og eilífum skilningi.