2025
Inngangur
Til styrktar ungmennum, nóvember 2025


Morgunhluti laugardags

Inngangur

Útdráttur

alt text

Ráðstefnuhöllin, Bandaríkjunum

Hala niður PDF-skjali

Kæru bræður og systur, við komum saman er við syrgjum andlát okkar ástkæra Russells M. Nelson forseta. Ég tala til ykkar sem forseti Tólfpostulasveitarinnar, og í þeirri stöðu hef ég þegar verið studdur í hverri deild okkar, stiku og á hverri ráðstefnu síðastliðin sjö og hálft ár.

Við höldum áfram með þessa síðari aðalráðstefnu, eins og ráðgert var og með ræðumenn og tónlist eins og Nelson forseti hafði úthlutað, eftir margra mánaða undirbúning. …

… Nelson forseti skildi gildi aðalráðstefnu til að veita hinum heilögu leiðsögn á komandi mánuðum. Við heiðrum hann með því að fylgja ráðgerðri ráðstefnuáætlun, sem hann skipulagði og samþykkti. …

Minn eigin stutti virðingarvottur – tilheyrilegur fyrir þessa ráðstefnu og lofgjörðin sem við höfum þegar látið í té – er þessi: Mér þótti vænt um Russell M. Nelson forseta og ég hef lært meira um fagnaðarerindið og hvernig vera á trúarlegur leiðtogi af langri vináttu minni og sambandi við hann, en af nokkrum öðrum leiðtoga sem ég hef þekkt persónulega. Hann er fyrirmynd okkar sem þjónn og fylgjandi Drottins Jesú Krists.