2025
Jesús Kristur og þitt nýja upphaf
Til styrktar ungmennum, nóvember 2025


Kvöldhluti laugardags

Jesús Kristur og þitt nýja upphaf

Útdráttur

alt text

Japan

Ráðstefnuhöllin, Bandaríkjunum

Nígería

Hala niður PDF-skjali

Jesús „gekk um [og] gerði gott“. … Hvílíkt vanmat felst í þessari setningu! …

Allt sem hann sagði og gerði veitti þeim nýtt upphaf sem hann læknaði, blessaði, kenndi og frelsaði frá synd. Hann dró sig ekki í hlé frá þeim og hann mun vissulega ekki draga sig í hlé frá ykkur. …

… Öll getum við fengið nýtt upphaf fyrir tilstilli og sökum Jesú Krists. Jafnvel þú. … Þetta er kirkja nýs upphafs! …

Iðrun opnar okkur dyr að nýju upphafi, ferskri byrjun og öðru tækifæri. …

… Ný dögun, nýir kaflar og ný tækifæri eru hinn einfaldi kjarni góðra tíðinda fagnaðarerindisins!

… Andstæðingurinn er sá eini sem nýtur góðs af þeirri hugmynd að þið séuð of djúpt sokkin. Þið eruð það ekki.

Og nýtt upphaf er notað í meira en aðeins syndir okkar og mistök. … Þið getið í raun breytt hlutum um ykkur sjálf, sem hafa verið að þjaka ykkur í mörg ár. …

Til þeirra sem glíma við sömu syndina eða sama áfallið aftur og aftur: Haldið áfram. Treystið á hið nýja upphaf sem er til staðar fyrir ykkur í hvert sinn sem þið snúið aftur til föður ykkar af einlægu hjarta. …

… Takið vinsamlega á móti ykkar nýja upphafi, jafnvel í dag, einmitt núna. Jesús Kristur er höfundur og fullkomnari trúar okkar og skrifar með okkur óteljandi nýja kafla. Hann er upphafið og endirinn – endir smánar okkar og þjáninga og upphaf nýs lífs í honum, sem leyfir okkur að skilja við fortíðina og byrja upp á nýtt með nýrri dögun, eins oft og við þurfum.