2025
Reynd og styrkt í Kristi
Til styrktar ungmennum, nóvember 2025


Morgunhluti sunnudags

Reynd og styrkt í Kristi

Útdráttur

alt text

Perú

Hala niður PDF-skjali

Fyrir löngu reyndi ég að læra eðlisfræði og stærðfræði á háskólaárum mínum. Það fannst mér yfirþyrmandi. … Ég fór að hugsa um að hætta, að gera eitthvað auðveldara.

Mér fannst ég veikburða. Þegar ég baðst fyrir, fann ég fyrir hljóðlátri fullvissu Drottins. Ég heyrði hann segja við huga minn: „Ég er að reyna þig, en ég er einnig með þér.“ …

Ég komst að því að barátta mín við eðlisfræðina var í raun gjöf frá Drottni. Hann var að kenna mér að með hans hjálp gæti ég gert hluti sem virtust ómögulegir, ef ég ætti þá trú að hann væri til staðar til að hjálpa mér. Með þessari gjöf var Drottinn að vinna að því að reyna mig og styrkja.

… Að reyna stálstykki, er að setja álag á það. … Stálið veikist ekki við áreynsluna. Í raun verður hægt að treysta á það, það verður nógu sterkt til að bera þyngri byrðar. …

Þegar við höfum áfram trú á Jesú Krist – jafnvel þegar okkur gæti fundist hlutirnir ómögulegir á þessari stundu – verðum við andlega sterkari. …

Sökum hinnar dýrðlegu friðþægingar sinnar, getur Jesús Kristur styrkt okkur á erfiðum tímum. …

… Það kann að koma hljóðlega gegnum raunir fjölskyldulífs. Það getur komið gegnum veikindi eða vonbrigði, sorg eða einmanaleika.

Ég ber vitni um að þessar stundir eru ekki sönnun þess að Drottinn hafi yfirgefið ykkur. Þau eru öllu heldur sönnun þess að hann elskar ykkur nægilega mikið til að fága ykkur og styrkja. Hann gerir ykkur nógu sterk til að bera þunga eilífs lífs.