Morgunhluti sunnudags
Spámenn Guðs
Útdráttur
Gana
Drottinn vitnaði fyrir konunni frá Súnemborg að Elísa væri spámaður Guðs og hún brást við með því að opna hús sitt fyrir honum.
Við getum líka meðtekið persónulegan vitnisburð um spámann Guðs í dag og opnað hjörtu okkar og huga – húsið okkar – fyrir boðskapnum sem himneskur faðir hefur fyrir okkur á þessum síðari dögum. …
Hvað er spámaður? Spámaður er maður sem er kallaður af Guði til að tala máli hans. …
Spámenn eru sjáendur og opinberarar. Það þýðir að þeir geta séð það sem aðrir geta ekki séð og þeir geta spáð fyrir um framtíðaratburði. … Spámenn taka á móti boðum og opinberunum frá Drottni. …
Spámenn boða einnig fagnaðarerindið og eru innblásnir kennarar og sendiboðar Guðs til allra á jörðinni. …
Spámenn vitna um Krist – tilvist hans, þjónustu hans og guðdómleika hans. …
Konan frá Súnemborg kenndi okkur að við getum haft þann vitnisburð í gegnum heilagan anda. Ég lofa ykkur að um leið og við vitum að þeir eru hinir Guðs smurðu, verður líf okkar auðveldara þrátt fyrir áframhaldandi áskoranir okkar, er við hlýðum röddu þeirra af trausti, trú og von. Að hlusta og hlýða röddu spámannsins, er afgerandi til að halda í allt það góða fram að síðari komu frelsara okkar. …
Ég er þakklát fyrir leiðsögn og helgað framlag lifandi spámanna. … Það mun alltaf vera Drottinn sem velur þjóna sína.