2025
Drottinn er að hraða verki sínu
Til styrktar ungmennum, nóvember 2025


Laugardagssíðdegi

Drottinn er að hraða verki sínu

Útdráttur

alt text

Síle

Bandaríkin

Hala niður PDF-skjali

Það eru skýrar vísbendingar um að trú á Jesú Krist sé að aukast á okkar tíma. Í Kirkju Jesú Krists hinna Síðari daga heilögu hefur orðið undraverð aukning á trúskiptingum og þátttöku trúskiptinga. …

… Þegar Drottinn hraðar verki sínu, ættum við að elska, hlúa að og þjóna þeim sem taka á móti fagnaðarerindi hans. …

Til þeirra sem eru ný í trúnni eða eru að snúa aftur til hennar, þá gætuð þið staðið frammi fyrir áskorunum. Verið þolinmóð við ykkur sjálf. …

Nauðsynlegt er að taka á móti helgiathöfnum og sáttmálum og lifa eftir boðorðunum. Einbeitið ykkur að sáttmálunum sem nauðsynlegir eru til upphafningar. …

Að læra hina hreinu kenningu Jesú Krists, er ævilangt viðfangsefni, bæði að skilja kenningar og lifa kristilegu lífi. Nauðsynlegir sáttmálar sjá okkur fyrir ramma sem við lýsum sem sáttmálsveginum. …

Ef þið setjið ykkur markmið um að meðtaka verðuglega hvern sáttmála sem nauðsynlegur er til upphafningar, þá verðið þið á veginum sem liggur til himneska ríkisins. Musterið og helgiathafnir musterisins verða að vera áhersla okkar.

Öll upplifum við vanmátt er við keppum að því að líkjast Jesú Kristi. Friðþæging hans gerir okkur kleift að iðrast daglega þegar okkur mistekst. …

Það hefur aldrei verið auðvelt að fylgja frelsaranum og kenningum hans í heimi sem er stöðugt í uppnámi. Til allrar hamingju, þá veita lifandi spámenn þá leiðsögn sem við þurfum sérstaklega á að halda fyrir okkar tíma. …

… Ég ber mitt örugga vitni um að Jesús Kristur lifir og að vegna friðþægingar hans, getum við verið eitt með honum.