„Ráðstefnupunktar,“ Barnavinur, nóvember 2025, 4–5.
Ráðstefnupunktar
Fagnaðarerindið snýst um fjölskyldur
Oaks forseti kenndi að fjölskyldan væri kjarninn í fagnaðarerindi Jesú Krists. Þegar hann var ungur drengur, dó faðir hans. Móðir hans kenndi honum fagnaðarerindið og það veitti honum von og frið. Fjölskyldur standa frammi fyrir áskorunum, en við getum öll haldið í vonina um að geta tilheyrt eilífri fjölskyldu.
Teiknið mynd af fjölskyldu ykkar.
Gera erfiða hluti með Kristi
Öldungur Eyring sagði að þegar hann var í háskóla hefðu eðlisfræði og stærðfræði verið honum erfið. Það þyrmdi yfir hann og hann vildi hætta. Þegar hann baðst fyrir, fann hann hughreystingu og hvatningu. Hann lærði að hann megnaði allt fyrir hjálp Krists, sem styrkir okkur öll (sjá Filippíbréfið 4:13). Þegar við stöndum frammi fyrir erfiðum tímum munu himneskur faðir og Jesús Kristur vera með okkur.
Teiknið eða skrifið um það þegar þið gerðuð eitthvað erfitt með hjálp himnesks föður og Jesú Krists.
Trú vitnisburði ykkar
Öldungur Brown sagði frá því að hann hefði gengið í kirkjuna á Jamaíku. Vinir hans spurðu: „Hvernig gastu gengið í þessa kirkju? Trúir þú virkilega þessu öllu?“ Hann hafði hins vegar hlotið vitnisburð frá heilögum anda og hélt sig við þann vitnisburð sinn. Þegar við veljum að trúa, þá mun vitnisburður okkar styrkjast.
Herbergi fyrir spámann
Systir Spannaus sagði biblíusögu um konu sem bauð spámanninum Elísa að borða á heimili sínu. Konan byggði jafnvel herbergi í húsinu sínu, svo hann hefði stað til að vera á. Heilagur andi staðfesti fyrir henni að hann væri spámaður Guðs. Við getum líka átt vitnisburð um spámenn Guðs. Við getum opnað hjörtu okkar og farið eftir leiðsögn þeirra.
Máttur Barnafélagssöngva
Systir Browning ræddi um mikilvægi Barnafélagssöngvanna. Hún sagði tónlistina geta hjálpað við að gróðursetja sáðkorn vitnisburðar í hjörtum okkar. Þegar við syngjum Barnafélagssöngva, syngjum við vitnisburð okkar um hið endurreista fagnaðarerindi. Jesús vill virkilega fá okkur sem sólskinsbarn.
King of Love, My Shepherd by Julie Rogers. May not be copied.