2025
Joseph deyr fyrir fagnaðarerindið
Nóvember 2025 Barnavinur


„Joseph deyr fyrir fagnaðarerindið,“ Barnavinur, nóvember 2025, 26–28.

Sögur úr ritningunum

Joseph deyr fyrir fagnaðarerindið

Reiðir bæjarbúar lesa fréttablað

Margir voru reiðir Joseph Smith og kirkjunni. Þeim líkaði ekki það sem Joseph kenndi. Sumir vildu jafnvel drepa hann.

Joseph Smith faðmar fjölskyldu sína

Joseph varð að fara til Carthage-borgar, svo að dómari gæti skorið úr um hvort hann hefði brotið lögin. Joseph blessaði Emmu og börn sín, kyssti þau bless og hélt til Carthage.

Joseph og Hyrum á hestbaki horfandi til baka á hið ófullgerða Nauvoo-musteri

Hyrum bróðir Josephs og fleiri vinir fóru með honum. Þegar þeir héldu af stað, leit Joseph til baka á Nauvoo. „Þetta er fallegasti staðurinn og besta fólkið undir himninum,“ sagði hann.

Joseph talar við verði í Carthage-fangelsinu meðan Hyrum les ritningarnar

Í Carthage voru mennirnir settir í fangelsi. Hyrum las fyrir þá úr Mormónsbók. Joseph sagði vörðunum að Mormónsbók væri sönn.

Menn með byssur reyna að komast inn í herbergið meðan Joseph og vinir hans halda dyrunum lokuðum

Síðar sama dag komu reiðir menn vopnaðir inn í fangelsið. Þeir tóku að skjóta inn í herbergið þar sem Joseph og vinir hans voru. Hyrum og Joseph voru drepnir.

Fyrri tíma heilagir hughreysta hver annan með Nauvoo-musterið að baki sér upp á hæð

Hinir heilögu urðu mjög sorgmæddir þegar þeir komust að því að Joseph og Hyrum væru látnir. En þeir vissu að kirkjan myndi halda áfram að vaxa og blessa börn Guðs hvarvetna um heim.