„15.100 og þar yfir,“ Barnavinur, nóvember 2025, 40–41.
Skrifað af ykkur
15.100 og þar yfir
Þegar ég varð átta ára var ég loksins nógu gamall til að hafa minn eigin aðgang að FamilySearch! Í fyrstu var ég kvíðinn, en foreldrar mínir og systkini kenndu mér hvernig skrá ætti og búa til ættartréð mitt svo ég gæti hjálpað áum mínum. Eftir þetta var ég ekki lengur kvíðinn. Mér fannst ég fá stuðning og vera undirbúinn.
Síðan fann ég hjá mér þrá til að gerast ættarsöguskoðari, líkt og foreldrar mínir og systkini gerðu. Ég valdi það sem eitt af markmiðum mínum í dagskrá barna og ungmenna. Ég þurfti að skrá 1.000 heimildir, til að ná því markmiði.
Stundum fannst mér þetta yfirþyrmandi. Foreldrar mínir minntu mig þó á að ég myndi ekki gera allt á einum degi. Þess í stað ætti ég að einbeita mér að því að gera þrjár skrár á dag og áður en ár liði myndi ég ná markmiði mínu. Þau sögðu að ef ég ætti erfitt með að skilja myndirnar, myndu þau hjálpa mér.
Ég bað til himnesks föður svo að hann gæti hjálpað mér að ná markmiði mínu. Mér leið mikið betur eftir bænina.
Ég gafst ekki upp og hélt áfram að skrá dag eftir dag. Ári síðar, áður en ég varð níu ára, hafði ég þegar skráð yfir 1.000 heimildir og fengið stöðu skoðara. Ég var mjög spenntur!
Ég fer nú alltaf með foreldrum mínum til Trujillo-musterisins í Perú. Ég hjálpa við að prenta helgiathafnaspjöldin, klippa þau út og afhendi öllum í fjölskyldunni, svo þau geti framkvæmt helgiathafnirnar meðan ég bíð í musterisgarðinum. Brátt mun ég geta farið inn til að gera skírnir.
Ég er 10 ára núna og er þegar með 15.100 heimildir skráðar! Ég er afar glaður og spenntur yfir því að ná þeim markmiðum mínum að líkjast Jesú Kristi meira.
Myndskreyting: Parker Nielsen