„Hlakka til dagskrár ungmenna,“ Barnavinur, nóvember 2025, 38–39.
Hlakka til dagskrár ungmenna
Að fara úr Barnafélaginu árið sem þið verðið 12 ára, getur stundum verið óttalegt eða jafnvel dapurlegt. Til allrar lukku, þá er margt spennandi við að verða 12 ára og fara í Stúlknafélagsbekkinn eða Aronsprestdæmissveitina! Hér eru fáein sannleikskorn.
1
Musterið
Þið getið hitt biskup ykkar til að fá musterismeðmæli og framkvæma skírnir fyrir hina dánu í musterinu!
2
Athafnir og viðburðir
Þið munið hafa marga viðburði með Stúlknafélaginu eða Aronsprestdæmishópnum. Þið getið líka farið í ungmennabúðir til að skemmta ykkur með öðrum á sama tíma og þið lærið um Jesú Krist og fagnaðarerindi hans!
3
Þjóna í kirkjunni
Þið gætuð hlotið köllun til að þjóna í forsætisráði bekkjar eða sveitar. Þið munuð líka fá tækifæri til að kenna bekknum ykkar, hjálpa við að skipuleggja athafnir og þjóna á annan hátt!
4
Trúarskóli yngri deildar og TSU-ráðstefnur
Árið sem þið verðið 14 ára getið þið byrjað að sækja trúarskólann til að læra meira um Jesú Krist og hið endurreista fagnaðarerindi hans. Þið getið líka sótt TSU-ráðstefnur (Til styrktar ungmennum) með öðrum ungmennum sem elska Jesú Krist og vilja fylgja honum.
5
Nýtt efni fyrir YKKUR!
-
Með hjálp foreldra, fáið þið áskrift að tímaritinu Til styrktar ungmennum á vefsíðu kirkjunnar.
-
Biðjið foreldri um að niðurhala Gospel Living-appinu. Í því eru skemmtilegar hugmyndir fyrir trúarnám og markmiðasetningu fyrir dagskrár barna og ungmenna.
-
Lærið Til styrktar ungmennum: Leiðarvísir að ákvarðanatökum. Þessi bæklingur var skrifaður til að hjálpa ykkur að fylgja Jesú Kristi.
-
Þið og fjölskylda ykkar getið fundið upplífgandi sögur, tónlist, tilkynningar og fleira á samfélagsmiðlasíðunum Strive to Be.