„Tíundarákvörðun Logans,“ Barnavinur, nóvember 2025, 8–9.
Tíundarákvörðun Logans
„Ertu fús til að hlýða boðorðinu um að greiða tíund?“ spurði mamma.
Sönn saga frá Bandaríkjunum.
Þegar Logan var fimm ára, fannst honum tíund vera hræðileg hugmynd!
Á heimiliskvöldinu setti mamma 10 dollara á borðið. „Við skulum ímynda okkur að þú vinnir þér inn 10 dollara.“
Logan brosti. „Allt í lagi.“
„Tíundin er 10 prósent. Þannig að þú myndir gefa einn dollara til kirkju Drottins. Mamma tók einum dollara úr bunkanum.
Logan gretti sig. „Gefa frá sér einn dollara? En ég vil halda öllum peningunum mínum!“
„Kannski líður þér öðruvísi þegar þú verður eldri,“ sagði mamma. „Himneskur faðir blessar okkur með öllu. Að greiða tíund er ein leið til að sýna Guði að við elskum hann og erum þakklát fyrir blessanir hans.“
Þegar Logan var sex ára, kenndu kennarar Barnafélagsins honum að tíund væri notuð til að byggja musteri. Logan elskaði musterin. Kannski var það góð hugmynd fyrir suma að greiða tíund. En ekki fyrir hann.
Þegar Logan var sjö ára, tók hann eftir því að fólk brosti þegar það rétti biskupnum tíundarumslögin sín. Gæti það virkilega veitt hamingju að gefa peningana sína?
Þegar hann var átta ára spurði mamma hann: „Logan, af hverju valdir þú að skírast?“
Þetta var auðveld spurning! „Til að halda boðorðin og fylgja Jesú Kristi,“ sagði Logan.
„Ertu þá fús til að hlýða boðorðinu um að greiða tíund?“ spurði mamma. „Það er undir þér komið.“
Logan fékk sting í hjartað. Þetta var ekki auðveld spurning. Hann vildi enn ekki gefa peningana sína. Hann vildi samt halda boðorðin. Logan hugsaði um musterin og brosandi fólkið sem greiddi tíund. Hann dró síðan djúpt andann og sagði: „Já.“
„Það væri góð ákvörðun!“ sagði mamma.
Logan leið mun betur. „Ég veit að mikilvægara er að halda boðorðin en að halda eftir öllum peningunum mínum.“
Á sunnudeginum, þegar Logan rétti biskupnum fyrsta tíundarumslagið sitt, áttaði hann sig á því að hann var brosandi. Hann var glaður! Hann skildi samt ekki allt varðandi tíund. Hann elskaði þó Guð og vissi að Guð myndi blessa hann fyrir að hlýða boðorðunum.
Myndskreyting: Shawna J. C. Tenney