„Fyrir eldri börn,“ Barnavinur, nóvember 2025, 34–35.
Fyrir eldri börn
Orð frá ykkur
Ég lærði um spámanninn Samúel í kirkju og ég elska söguna!
Liam F., 9 ára, Okinawa, Japan
Ég veit að Jesús Kristur þekkir mig og hver ég er. Ég er þakklát honum fyrir að hughreysta mig á erfiðri stundu og fyrir að leyfa mér ekki að takast á við það ein.
Antonella D., 10 ára, Rio Grande do Sul, Brasilíu
Teiknimyndasíða ættarsögu
Skrifið eða teiknið sanna sögu í svæðið að neðan. Þið gætuð sagt sögu úr ættarsögu ykkar eða þegar þið völduð hið rétta. Sendið okkur mynd þegar þið eruð búin! Skoðið baksíðuna til að sjá hvernig það er gert.
Ráðið kóðann
Tíundargreiðsla er blessun! Tíundarfé fer í byggingu mustera og kirkna, prentun ritninga, stuðning trúboða og margt fleira. Þegar við hlýðum boðorðinu um að greiða tíund, blessar himneskur faðir okkur á margan hátt (sjá Malakí 3:10).
Finnið út hvers virði hver smápeningur er. Leysið síðan lokaáskorunina. Hversu mikla tíund ættuð þið að greiða? (Vísbending: Tíund er 10 prósent.)
Myndskreyting: Josh Talbot