2025
Hvað gerist þegar spámaðurinn deyr?
Nóvember 2025 Barnavinur


„Hvað gerist þegar spámaðurinn deyr?“ Barnavinur, nóvember 2025, 3.

Hvað gerist þegar spámaðurinn deyr?

  1. Drottinn kallar spámenn til að leiða kirkju sína og hann hefur fastsett skipulag þegar einhver þeirra deyr. Hann leiðir og stjórnar kirkju sinni ávallt!

  2. Þegar forseti kirkjunnar deyr, leiðir Tólfpostulasveitin kirkjuna. Þar á meðal eru postularnir tveir sem voru ráðgjafar í Æðsta forsætisráðinu.

  3. Postularnir biðja og ákveða hvenær stofna skuli nýtt Æðsta forsætisráð.

  4. Drottinn kallar þann postula sem lengst hefur þjónað sem næsta spámann og forseta kirkjunnar.

  5. Með hinum nýja spámanni kallar Drottinn tvo postula sem ráðgjafa í hinu nýja Æðsta forsætisráði.

  6. Nýr postuli verður kallaður til að þjóna í Tólfpostulasveitinni.

  7. Á aðalráðstefnu réttum við upp hönd og styðjum hið nýja Æðsta forsætisráð og Tólfpostulasveitina. Stuðningur þýðir að við samþykkjum að elska og styðja þá og fylgja leiðsögn þeirra sem þjóna Drottins.

  8. Þegar nýr forseti kirkjunnar eða postuli er kallaður, getið þið beðist fyrir til að vita að þeir hafi verið kallaðir af Guði. Þið getið stutt þá með því að hlusta á orð þeirra og fylgja þeim!

Page PDF