2025
Kom, fylg mér – Verkefni
Nóvember 2025 Barnavinur


Kom, fylg mér – Verkefni,“ Barnavinur, nóvember 2025, 22–23.

Kom, fylg mérVerkefni

27. október–2. nóvember: Kenning og sáttmálar 124

Einlæg hjörtu

Tvö börn lita hjörtu á pappír

Drottinn elskaði þjón sinn Hyrum Smith vegna „einlægni hjarta hans“ (Kenning og sáttmálar 124:15). Finnið upp hvað orðið einlægni merkir og ræðið það með fjölskyldu ykkar. Teiknið stórt hjarta á blað. Teiknið eða skrifið eitthvað í hjartað sem þið getið gert til að vera einlæg.

3.–9. nóvember: Kenning og sáttmálar 125–128

Fjölskyldumyndarammi

Þegar Brigham Young kom heim úr trúboði sínu, bauð Drottinn honum að annast fjölskyldu sína (sjá Kenning og sáttmálar 126). Búið til og skreytið ramma til að hafa þar mynd af fjölskyldunni. Hvernig getið þið hugsað um hvert annað?

10.–16. nóvember: Kenning og sáttmálar 129–132

Fylgja leiðtoganum

Tvö börn klappa á höfuð sitt

Líkami okkar er eins og líkamar himnesks föður og Jesú Krists (sjá Kenning og sáttmálar 130:22). Farið í þennan leik til að fagna líkama ykkar! Skiptist á við að velja hreyfingu, eins og að hoppa eða klappa á höfuðið. Allir aðrir herma eftir hreyfingunni.

17.–23. nóvember: Kenning og sáttmálar 133–134

Kærleiksrík þjónusta

Jesús Kristur er góður og kærleiksríkur (sjá Kenningar og sáttmálar 133:52). Setjið nafn hvers og eins í skál. Veljið nafn og þjónið þeirri manneskju í leyni í þessari viku.

24.–30. nóvember: Kenning og sáttmálar 135–136

Saga Josephs Smith

Drengur að lita mynd

Joseph Smith var spámaður endurreisnarinnar (sjá Kenning og sáttmálar 135:3). Teiknið myndir úr lífi hans. Hvernig getið þið vitað að hann var spámaður?

PDF-síða

Ljósmyndir: Christina Smith