„Velkomin, Barnavinir!“ Barnavinur, nóvember 2025, 1.
Velkomin, Barnavinir!
Vissuð þið að sögur okkar eru skrifaðar um raunveruleg börn frá öllum heimshornum? Hver einstaklingur hefur ótrúlega sögu að segja! Ættarsaga er líka þannig – allar fjölskyldur eiga sér sögu. Hún þarf ekki að vera löng til að vera mikilvæg. Þegar þið miðlið henni, miðlið þið hluta af ættarsögu ykkar.
Þið getið notað spurningarnar á bls. 35 til að hjálpa ykkur að læra meira um fjölskyldu ykkar. Þið getið líka teiknað einhverjar myndanna af þeim á síðum 24–25. Himneskur faðir gaf okkur fjölskyldur til að hjálpa okkur að læra og vaxa, svo byrjum að læra!
Kveðja,
Barnavinur