„Hjálpa af gleði!“ Barnavinur, nóvember 2025, 44–45.
Þægilegur lestur
Hjálpa af gleði!
Sönn saga frá Taívan.
Yi-Hsun elskar að teikna í myndlistartíma sínum.
Þegar myndlistatímanum lýkur fara allir út að hlaupa og leika sér. Yi-Hsun langar að hlaupa til að ná vinum sínum.
En þá sér hún Yi-Ruei hrasa á steini og fá högg á hnéð. „Er allt í lagi?“ spyr Yi-Hsun.
Yi-Ruei hristir höfuðið og byrjar að gráta.
Yi-Hsun hjálpar vinkonu sinni að fara til skólahjúkrunarfræðingsins. Hjúkrunarfræðingurinn hreinsar upp hné Yi-Ruei og segir henni að hvíla sig.
Yi-Hsun hjálpar Yi-Ruei aftur í kennslustofuna.
Yi-Hsun er ánægð með að hún fylgdi fordæmi Jesú og hjálpaði Yi-Ruei. Þær klára myndirnar saman.
Myndskreyting: Samantha Windley