„Fylgja Jesú á Spáni,“ Barnavinur, nóvember 2025, 14–15.
Fylgja Jesú á Spáni
Þetta er Eimy
Eimy fylgir Jesú Kristi með því að hjálpa fjölskyldu sinni og leika við frændur sína. „Þegar ég þjóna öðrum líður mér ofboðslega vel og er hamingjusöm,“ segir hún.
Eimy miðlar einnig öðrum um kirkjuna. „Ég fann fyrir mikilli gleði þegar ég miðlaði vinum mínum í skólanum fagnaðarerindinu,“ sagði hún. Hún bauð einni vinkonu sinni í skírn sína og bað fyrir henni. Henni finnst líka gaman að deila matnum sínum og leikföngum með öðrum.
Um Eimy
Aldur: 8 ára
Frá: Guadalajara, Spáni
Tungumál: Spænska
Markmið: Heimsækja fjölskyldu sína í Kólumbíu
Áhugamál: Fimleikar, fara í bíó með fjölskyldunni og leika sér í garðinum með vinum sínum
Fjölskylda: Eimy, tveir bræður, mamma og pabbi
Það sem er í uppáhaldi hjá Eimy
Ritningarsaga: Þegar Jesús Kristur kenndi börnunum
Matur: Arepas (fyllt flatbrauð)
Ávöxtur og grænmeti: Bananar og salat
Litir: Bleikur, fjólublár, grænn
Barnafélagslag: „Guðs barnið eitt ég er,“ (Barnasöngbókin, 2)