2025
Trúarorðin mín
Nóvember 2025 Barnavinur


„Trúarorðin mín,“ Barnavinur, nóvember 2025, 10.

Trúarorðin mín

Gætið að þessum orðum og orðtökum í þessu tölublaði Barnavinar!

Tíund

Myndskreyting af musteri og peningum frá ýmsum löndum

Tíundargreiðsla er að gefa til baka til himnesks föður með því að gefa einn tíunda (10 prósent) af tekjum okkar til kirkju hans. Tíund hjálpar við að byggja musteri og kirkjur og styður starf kirkjunnar. Þegar við greiðum tíund, blessar himneskur faðir okkur á margan hátt!

Áar

Myndskreyting af merki FamilySearch á stílfærðu ættartré.

Áar okkar eru skyldmenni fjölskyldu okkar sem voru uppi fyrir löngu síðan, eins og langalangafar okkar og ömmur. Áar eru mikilvægur hluti ættarsögu okkar. Við getum lært um þá, minnst þeirra og gert musterisverk fyrir þá, svo við getum verið saman að eilífu.

Skráning

Skráning er leið til að hjálpa öðrum að finna áa sína! Við skráum nöfn úr gömlum pappírsheimildum í tölvu, svo fólk geti leitað að ættmennum sínum og fundið heimildir um líf sitt. Þetta hjálpar við ættarsögu og musterisstarf, svo fleiri geti innsiglast að eilífu. Börn geta líka hjálpað við skráningu!

Píslarvætti

Píslarvætti á sér stað þegar einhver deyr fyrir eitthvað sem hann trúir á. Joseph Smith og bróðir hans, Hyrum, voru píslarvottar því þeir voru drepnir fyrir að trúa á, lifa eftir og kenna hið endurreista fagnaðarerindi Jesú Krists.

PDF-síða

Myndskreyting: Madison Baker