„Leiðarvísir að hætti Gamla testamentisins um að taka á móti guðlegu auðkenni,“ Líahóna, mars 2026.
Frá Vikulegu efni UFF
Leiðarvísir að hætti Gamla testamentisins um að taka á móti guðlegu auðkenni
Fólk í Gamla testamentinu gæti hafa glímt við sömu spurningar og ég og þið gætum haft í dag.
Í upphafi var orðið, eftir Evu Timothy, má afrita aðeins til kirkjunota
Ég væri að ljúga ef ég segðist aldrei efast um hlutverk mitt í áætlun Guðs.
Hvernig gæti ég mögulega – eins ófullkomin og ég er – passað inn í fullkomna áætlun hans? Hvernig gæti ég verið verðug þessara viðbótartækifæra sem himneskur faðir veitir mér hvað eftir annað? Hvernig gæti mér verið treystandi til að miðla öðrum elsku hans þegar ég á stundum erfitt með að skynja hana sjálf?
Ef þessi neikvæði vítahringur virðist kunnuglegur, eruð þið ekki ein.
Ein árangursríkasta aðferð andstæðingsins er að ráðast á skilning okkar á guðlegu auðkenni. Öldungur Brian K. Taylor, af hinum Sjötíu, kenndi: „Stríðið yfir hinu guðlega auðkenni er harðvítugt, því Satan vex ásmegin í því að eyðileggja trú okkar og vitneskju um samband okkar við Guð.“
Til allrar hamingju þá hefur himneskur faðir kennt – og heldur áfram að kenna – börnum sínum um verðmæti þeirra. Allt frá upphafi gæti fólk í ritningunum hafa glímt við sömu spurningar og ég og þið gætum haft í dag.
Þegar þið lærið í Gamla testamentinu á þessu ári, getið þið lært um ykkar eigið guðlega auðkenni með því að heimfæra reynslu fólks í ritningunum upp á ykkar eigið líf. Kannski finnið þið líka svör við afar mikilvægri spurningu í leiðinni:
Hver er ég?
Mér er …
treyst fyrir helgri ráðsmennsku
Adam og Eva marka upphaf þarfar mannkyns fyrir að skilja guðlegt auðkenni. Himneskur faðir skapaði þau í sinni mynd, veitti þeim ráðsmennsku yfir jörðunni og öllum skepnum á henni og bauð þeim að margfaldast og uppfylla jörðina (sjá HDP Móse 2:26–28).
Sem afkomendur Adams og Evu, getið þið heimfært þessar sömu reglur auðkennis upp á ykkur sjálf. Þið eruð bókstaflega andabörn Guðs með þá guðlegu ábyrgð að vera skynsamir ráðsmenn og byggja upp eilífa fjölskyldu.
Þegar Adam og Eva átu af skilningstré góðs og ills, var þeim vísað út úr aldingarðinum Eden. Þótt þau væru útilokuð úr návist himnesks föður, bæði stundlega og andlega, sá hann þeim fyrir frelsara til að hjálpa þeim að sigrast bæði á líkamlegum og andlegum dauða fyrir tilverknað friðþægingar Jesú Krists.
Eins og Adam og Eva, þá er virði ykkar „mikið í augum Guðs“ (Kenning og sáttmálar 18:10).
Ég er …
barn sáttmála Abrahams
Saga Abrahams tengist beint guðlegu auðkenni. Drottinn gaf Abraham loforð um eilífar afleiðingar:
„Ég mun gera þig að mikilli þjóð og blessa þig og gera nafn þitt mikið. Blessun skalt þú vera.
Ég mun leiða blessun yfir þá sem blessa þig og bölvun yfir þann sem formælir þér. Allar ættkvíslir jarðarinnar munu af þér blessun hljóta“ (1. Mósebók 12:2–3).
Eftir margra ára bið í trú, voru Abraham og Sara blessuð með fæðingu sonar síns, Ísaks. Guð bauð síðan Abraham að fórna Ísak „í líkingu við Guð og hans eingetna son“ (Jakob 4:5). Þegar Abraham sýndi að hann væri fús til að færa slíka fórn, var hann stöðvaður af engli Drottins.
Við lesum:
„Ég sver við sjálfan mig, segir Drottinn: Af því að þú gerðir þetta og synjaðir mér ekki um einkason þinn
mun ég ríkulega blessa þig og margfalda kyn þitt mikillega eins og stjörnur á himni, eins og sand á sjávarströnd. Og niðjar þínir skulu ná borgarhliðum óvina sinna.
Allar þjóðir heims munu blessun hljóta af niðjum þínum vegna þess að þú hlýðnaðist raust minni“ (1. Mósebók 22:16–18).
Þessi áhrifamikla frásögn kennir að allir sem gera og halda sáttmála við himneskan föður geti nálgast þær blessanir sem lofaðar eru niðjum Abrahams. Sem börn sáttmálans getið þið hlotið fyrirheitnar blessanir sáttmála Abrahams með því að halda fast í loforðin sem þið gefið Drottni í skírnar- eða musterissáttmálum.
Ég er …
þolgóður lærisveinn Drottins
Hagar, ambátt Söru og móðir Ísmaels, kennir um mikla hæfni okkar til þolgæðis. Eftir fæðingu Ísaks, sonar Abrahams og Söru, voru Hagar og Ísmael gerð útlæg til eyðimerkurinnar (sjá 1. Mósebók 21:9–14).
Drottinn sá neyð hennar og einlægar bænir vegna lífs Ísmaels og sendi því engil til að hugga hana: „Óttast þú ekki því að Guð hefur heyrt grát sveinsins þar sem hann liggur. Stattu upp, reistu drenginn á fætur og leiddu hann þér við hönd því að ég mun gera hann að mikilli þjóð“ (1. Mósebók 21:17–18).
Þótt Hagar hafi upplifað sig aleina í eyðimörkinni, yfirgaf himneskur faðir hana ekki. Hún naut verndar og hlaut laun fyrir trú sína og kostgæfni.
Eins og Hagar, gæti ykkur liðið eins og þið séuð að ráfa um eyðimörk á eigin spýtur. En þið eruð mikils virði í augum himnesks föður ykkar. Þið gætuð villst um eyðimörkina um tíma, en hann hefur ekki gleymt ykkur. Hann býr ykkur undir að gera stórkostlega hluti til uppbyggingar ríkis hans.
Ég er …
hönd Guðs á jörðu
Móse var kallaður af himneskum föður til að leysa Ísraelsmenn úr ánauð í Egyptalandi. Hann framkvæmdi mörg áhrifamikil kraftaverk sem leiddu til flótta þeirra að lokum (sjá 2. Mósebók 7; 14).
Þótt Móse hefði verið farsæll í köllun sinni, hafði hann ekki alltaf trú á getu sinni til að gera það sem himneskur faðir bauð honum að gera. Þegar Móse tjáði vanmáttarkennd sína, svaraði Drottinn: „Ég mun vera með þér. Þetta skal vera þér tákn þess að ég hef sent þig: Þegar þú hefur leitt þjóðina út úr Egyptalandi munuð þið þjóna Guði á þessu fjalli“ (2. Mósebók 3:12).
Móse fagnaði auðkenni sínu sem barn Guðs og fékk aðgang að krafti himnesks föður til að framkvæma kraftaverk hans. Þið, líkt og Móse, hafið aðgang að krafti til að vinna verk Guðs, er þið meðtakið eilíft samband ykkar við himneskan föður.
Ég er …
Svo, hver eruð þið?
Nú er kominn tími fyrir ykkur að uppgötva svarið fyrir ykkur sjálf.
Kannið ritningarnar til að leita svara við spurningum ykkar og þið munið finna þau. Himneskur faðir vill að þið skiljið nákvæmlega hver þið eruð, svo þið getið elskað ykkur sjálf eins og hann elskar ykkur.
Vitneskjan um ykkar eilífa, guðlega auðkenni er handan við hornið – svo eftir hverju bíðið þið?