„Augu til að sjá hið góða,“ Líahóna, mars 2026.
Frá Síðari daga heilögum
Augu til að sjá hið góða
Þegar sjón eiginkonu minnar tók að hraka, þá snérum við okkur til friðþægingar Jesú Krists til að fá líkn.
Myndskreyting: Briana Kranz
Í janúar 2025 fór eiginkona mín, Kayla, að eiga í erfileikum með sjónina. Hún fékk ítrekað stöðugan höfuðverk og verk í vinstra auga. Hún sá ekki vel og við vorum farin að hafa áhyggjur.
Þegar við fórum til sjóntækjafræðings, komst hann að því að mikill þrýstingur var á vinstra auga hennar. Hann vísaði okkur til augnlæknis til að athuga með gláku. Sjón Kaylu var í mikilli hættu. Við hringdum í nokkra lækna, en margar læknastofur voru enn lokaðar yfir hátíðirnar. Það eina sem við gátum gert var að bíða.
Áhyggjur herjuðu þungt á huga okkar. Við snérum okkur til himnesks föður í bæn um hjálp og báðum þess að allt færi að hans áætlun. Við þráðum stuðning hans og skynjuðum kærleika hans. Við vissum að allt myndi fara vel.
Á endanum fengum við tíma, bara fjórum dögum seinna, hjá sérfræðingi sem var vanalega með nokkurra mánaða biðlista. Augnlæknirinn komst að því að augnþrýstingur Kaylu hafði minnkað. Hann skrifaði upp á einhverja augndropa og við héldum leiðar okkar.
Engin gerbreyting hafði átt sér stað með augu eiginkonu minnar, en við lærðum að sjá hið góða með því að snúa okkur að friðþægingu Jesú Krists. Frelsarinn hjálpar okkur að vera jákvæð og glöð, þrátt fyrir erfiðleika. Við vitum að hann getur læknað okkur á sínum tíma og á sinn hátt.
Jesús Kristur galt ekki aðeins fyrir syndir okkar – hann þoldi líka allan okkar „sársauka [og] þrengingar; … svo að hjarta hans fyllist miskunn samkvæmt holdinu, svo að hann megi vita í holdinu, hvernig fólki hans verður best liðsinnt í vanmætti þess“ (Alma 7:11–12).
Við fundum til hughreystingar því við vissum að Jesús Kristur skildi sorg okkar. Þar sem við tengdumst honum, fundum við „hvíld sálum [okkar]“ (sjá Matteus 11:28–30).
Camille N. Johnson forseti, aðalforseti Líknarfélagsins, kenndi:
„Jesús Kristur getur létt byrðar okkar.
Jesús Kristur getur lyft byrðum okkar. …