„20 hugmyndir fyrir páskahátíðina ykkar,“ Líahóna, mars 2026.
20 hugmyndir fyrir páskahátíðina ykkar
Allt frá hinu kunnuglega til hins nýstárlega, það eru margar leiðir til að skapa kristsmiðaðar hefðir.
Myndskreyting: Christina McMaster
Í ræðu sinni á aðalráðstefnu í apríl 2023 spurði öldungur Gary E. Stevenson í Tólfpostulasveitinni: „Hvernig mótum við kennslu og fögnuð yfir upprisu Jesú Krists, páskasögunni, af sama jafnvægi, fyllingu og ríkulegum trúarhefðum og fæðingu Jesú Krists, jólasögunni?“
Meðlimir um allan heim einbeita sér nú meira að páskatíðinni. Hér eru nokkrar einfaldar, heilnæmar athafnir til að auðga og útvíkka páskana – og tilbeiðslu á frelsaranum – fyrir einstaklinga, hópa og söfnuði.
Hugmyndir fyrir einstaklinga og fjölskyldur
-
Búið til pappírskeðju með ritningum eða tilvitnunum sem hafa Krist að þungamiðju og hugleiðið eina á hverjum morgni í mánuðinum fram að páskum.
-
Hlutir geta verið táknrænir fyrir mismunandi þætti páskaviðburða í ritningunum. Sumir fljúga til að mynda litríkum flugdrekum til minningar um upprisu Krists úr gröfinni. Leitið að hlutum sem minna ykkur á frelsarann yfir hátíðirnar.
-
Að búa til páskakort getur verið skapandi leið til að miðla ljósi Jesú. Íhugið að færa vinum eða nágrönnum sem þið þjónið þessi sköpunarverk.
-
Fylgjendur Krists notuðu kryddjurtir til að heiðra hann við greftrun hans (sjá Jóhannes 19:39–40). Notkun krydda í páskaréttina getur leitt hugsanir ykkar til þess helga augnabliks.
-
Kristur lifði í þjónustu annarra og við getum minnst hans á þessum páskum með því að gera það sama. Látið hvern meðlim fjölskyldunnar velja nafn og verja helgri viku í að þjóna þeim einstaklingi með leynd.
-
Sumir nota ólífugreinar og ólífuolíu til að minna okkur á frið og friðþægingarfórn Krists. Kirkjumeðlimir gætu íhugað að bæta þessum hlutum í skreytingar eða máltíðir til að endurspegla þann frið sem frelsarinn býður.
-
Ákveðin þemu frá páskunum eru hátíðlegri og að gefa sér tíma í dymbilvikunni til kyrrláts náms og íhugunar er ein leið til að muna eftir þeim þáttum.
-
Páskarnir eru hátíð þakklætis fyrir allt það sem Jesús Kristur gerði fyrir okkur. Finnið tíma yfir hátíðirnar til að fylla vegg eða veggspjald með því vegna hvers þið eruð þakklát fyrir frelsarann.
-
Í sumum heimshlutum eru páskarnir haldnir hátíðlegir á tímum nýs lífs, svo að árstíðin sjálf þjóni sem sjónræn áminning um upprisu Krists. Leitið að svæði til að ganga í gegnum náttúruna og njóta þessa táknmáls.
-
Lambakjöt er hefðbundinn páskaréttur sem táknar Jesú Krist sem lamb Guðs og uppfyllir forboðann um frelsun með fórn (sjá 2. Mósebók 12; Jóhannes 1:29). Að bera fram lambakjöt er ein leið fyrir fjölskyldur til að minnast þess hlutverks frelsarans að frelsa okkur frá synd með friðþægingu hans.
Hugmyndir fyrir deild og stiku
-
Fasta og bæn eru máttug leið til að tengjast Kristi. Íhugið að skipuleggja deildarföstu í dymbilvikunni, fyrir málstað sem er mikilvægur fyrir nærsamfélagið.
-
Á jólunum nýtur fólk þess að leika jólasöguna. Af virðingu sviðsetjum við ekki atburði frá páskunum, en deildir gætu haft trúarsamkomur þar sem lögð er áhersla á kenningar frelsarans í dymbilvikunni og merking þeirra atriða rædd.
-
Páskarnir eru tími endurnýjunar vegna upprisu Krists. Að safna saman hópi til að þrífa hús eða garð einhvers, gæti verið gagnleg áminning um þemað.
-
Á sumum svæðum heimsins eru bál tendruð á páskum, til tákns um að ljós sigri myrkur. Að kveikja eld eða kerti, getur táknað frelsarann sem ljós heimsins sem sigraðist á dauða og synd.
-
Miðlið texta páskasálma, sem hluta af lexíu. Ræðið kenninguna og vitnisburðinn í hverju versi.
-
Bjóðið meðlimum að sýna listaverk eða ljósmyndir sem endurspegla páskaþemu.
-
Jesús ber mörg nöfn og titla og hver þeirra opinberar mismunandi þætti í eðli hans. Að koma saman sem deild til að gera listsýningu um þau, gæti verið góð leið til að einblína á mismunandi þætti Krists á páskunum.
-
Íhugið að koma á hefð tilbeiðslu með tónlist, nota ritningarnar og söngva til að hugleiða fórn og elsku frelsarans. Deild eða stika gæti komið saman til að læra og syngja páskasálma og miðla páskatengdum ritningarversum.
-
Fjölskyldur geta verið eilífar fyrir tilstilli Jesú Krists. Að skipuleggja ættarsöguviðburð eða musterisferð gæti minnt meðlimi á þessa reglu á páskunum.
-
Krítarteikning er skemmtilegt verkefni fyrir alla aldurshópa og fjöltrúarlegur páskalistviðburður gæti verið skapandi leið til að miðla og öðlast vitnisburð um Krist.