„Í hans erindagjörðum,“ Líahóna, mars 2026.
Frá Síðari daga heilögum
Í hans erindagjörðum
Ég vissi ekki hvernig ég ætti að greina fjölskyldu frá andláti dóttur þeirra, fyrr en heilagur andi hjálpaði mér.
Myndskreyting: Briana Kranz
Ef átakanlegasta reynsla mannsins er að þola sorglegan, óvæntan missi ástvinar, þá held ég að næsterfiðasta reynslan gæti átt sér stað þegar fyrsti viðbragðsaðili lítur í augu móður og föður og segir þeim að barnið þeirra sé látið.
Morgun einn var ég sendur til að tilkynna fjölskyldu að yngsta dóttir þeirra hefði látist þegar hún ók heim frá háskólanum. Hún hafði sofnað undir stýri og lést samstundis þegar bíll hennar rann út af veginum og keyrði harkalega á. Það var páskasunnudagur.
Ég kveið sársaukanum sem ég var að fara að valda þessari fjölskyldu. Á einhvern undarlegan hátt fannst mér næstum eins og ég væri á einhvern hátt ábyrgur með því að knésetja fjölskylduna með þessum fréttum.
Ég hringdi dyrabjöllunni og maður nálgaðist. Augu okkar mættust út um gluggann á dyrunum. Hann fraus, áhyggjur sáust á andliti hans. Hann vissi að nærvera mín útskýrði fjarveru dóttur hans. Skyndilega hlaut ég andlegan innblástur:
„Jason, gleymdu sjálfum þér. Þú ert erindreki minn og átt rétt á valdi mínu. Notaðu það. Treystu því. Heilagur andi mun leiða þig til að færa þeim skilning og lausn sem eru í togstreitu eða eru ráðvilltir.“
Maðurinn opnaði hurðina með skjálfandi höndum. Andlegt sjálfstraust kom í stað tregðu minnar er ég kynnti mig og bað um að fá að koma inn. Þótt ég hefði styrkst af andanum, fann ég innilega til með honum. Ég vildi deila sorg hans, syrgja með honum og gráta með honum (sjá Mósía 18:8–9) og fannst að það myndi draga úr þjáningum hans.
Við gengum niður stuttan gang inn í herbergi þar sem kona hans og börn höfðu safnast saman. Styrktur af heilögum anda, fann ég fullvissu og skýrleika í huga. Ég svaraði spurningum þeirra og bar síðan vitni um að vegna Jesú Krists, fórnar hans og upprisu, myndu þau sjá dóttur sína aftur.
Í gegnum þessa reynslu þróaðist trú mín á Drottin yfir í traust. Ég vonaðist til þess að þeirra hefði gert það líka.
Öldungur Paul B. Pieper, af hinum Sjötíu, kenndi: „Stundum er besta leiðin að læra að treysta Guði einfaldlega sú að treysta honum.“
Það hefur hjálpað mér að hafa styrk til að hjálpa öðrum, ef ég treysti Drottni. Það hefur líka styrkt vitnisburð minn og rutt brautina að ótal tækifærum til að þjóna öðrum fyrir hann.