Líahóna
Jósef frá Arímaþeu: Réttlátar þrár og kraftaverk Guðs
Líahóna, mars 2026


„Jósef frá Arímaþeu: Réttlátar þrár og kraftaverk Guðs,“ Líahóna, mars 2026.

Þau þekktu frelsarann

Jósef frá Arímaþeu: Réttlátar þrár og kraftaverk Guðs

Hver var Jósef frá Arímaþeu og hvað getum við lært af hlutverki hans í páskasögunni?

myndskreyting af Jósef frá Arímaþeu

Myndskreyting: Laura Serra, óheimilt að afrita

Jósef frá Arímaþeu gengdi mikilvægu hlutverki í páskafrásögninni og hjálpaði Drottni er hann vann mesta sigur mannkynssögunnar. Þegar Jesús Kristur var krossfestur, „áræddi [hann] að fara inn til Pílatusar og biðja um líkama Jesú“ (Markús 15:43). Hvað var það sem fékk Jósef til að dvelja áfram og taka þátt í svo mikilvægu stigi fórnar frelsarans, eftir að svo margir aðrir höfðu yfirgefið Drottin á örvæntingarstundu hans?

Hollusta hans gæti virst í mótsögn við stöðu hans sem auðugs ráðgjafa í Sanhedrín, þingi Gyðinga sem samanstóð af faríseum og saddúkeum, sem dæmdi Krist til dauða (sjá Matteus 27:1, 57). Jósef hélt enn fremur hlutverki sínu sem lærisveins Krists leyndu „af ótta við ráðamenn Gyðinga“ (Jóhannes 19:38).

Trúfesta hans skein þó í gegn að lokum. Hann „hafði ekki samþykkt ráð þeirra né athæfi“ sem sóttust eftir lífi frelsarans (sjá Lúkas 23:50–51). Eftir að frelsarinn dó, vafði Jósef líkama meistarans í línklæði og lagði hann í sína eigin nýju gröf (sjá Matteus 27:59–60; Lúkas 23:52–53). Þetta var uppfylling spádóms um að gröf Krists yrði meðal hinna ríku (sjá Jesaja 53:9).

Hann er upp risinn

Þegar Jósef frá Arímaþeu gaf gröf sína fyrir greftrun frelsarans, hjálpaði hann við að uppfylla spádóma og undirbjó veg fyrir hið undursamlega vitni um upprisu Jesú Krists. Á þriðja degi eftir krossfestinguna fundu fylgjendur Krists gröfina tóma og engill lýsti yfir: „Hann er ekki hér. Hann er upp risinn“ (Matteus 28:6).

„Upprisa Jesú Krists ber vitni um guðdómleika hans og að hann hefur sigrast á öllu,“ kenndi D. Todd Christofferson forseti, annar ráðgjafi í Æðsta forsætisráðinu. „Upprisa hans ber vitni um að við getum einnig sigrast á öllu og orðið eitt ef við erum bundin honum í sáttmála. Upprisa hans ber vitni um að ódauðleiki og eilíft líf eru raunveruleg fyrir tilstuðlan hans.“

Jósef vissi kannski ekki hvað hann gaf fyrstu páskana, umfram þrá sína til að sýna Jesú Kristi virðingu. Drottinn notaði þó réttlátar þrár Jósefs sem hluta af hinu endanlega kraftaverki sínu, til að verða „frumgróði þeirra sem sofnuð eru“ (Fyrra Korintubréf 15:20), hinir fyrstu sem risu upp frá dauðum.

Á sama hátt og Jósef hafði mikilvægu hlutverki að gegna, þá getur hvert okkar verið verkfæri í höndum himnesks föður. Áætlun hans er fyrir alla og hann mun nýta kunnáttu okkar, reynslu og aðstæður til að efla hið mikla verk sitt. Þessa páska getum við minnst þessa boðskapar og leitað Jesú Krists, fórnað því sem við getum til að byggja upp ríki hans og látið kraftaverk hans gerast í lífi okkar.

Heimildir

  1. D. Todd Christofferson, „Eitt í Kristi,“ aðalráðstefna, apríl 2023.