„Sorg mín varð að gleði,“ Líahóna, mars 2026.
Frá Síðari daga heilögum
Sorg mín varð að gleði
Ný sýn á friðþægingu Jesú Krists hjálpaði mér að sækja fram í trú og von.
Myndskreyting: Briana Kranz
Þegar ég var 18 ára lést móðurafi minn. Á þeim tímapunkti í lífi mínu hafði ég ekki misst neinn nákominn. Ég vissi að þetta myndi gerast einhvern daginn, en átti ekki von á að það myndi gerast svona skyndilega.
Afi minn var við góða heilsu, en fyrirvaralaust fékk hann heilablóðfall. Amma fór með hann í skyndi á sjúkrahús, en hann lést fjórum dögum síðar.
Að missa einhvern svona skyndilega í fyrsta skipti, var sárt. Það var skrýtið sjá hann hverfa eftir að hafa verið viðstaddur alla mikilvæga viðburði í lífi mínu.
Eftir jarðaförina fann ég leið til að heiðra minninguna um afa minn og samverustundir okkar. Hann elskaði að vinna við pallbílinn sinn og við önnur verkefni. Reyndar var hann í bílskúrnum þegar hann fékk heilablóðfallið, með skiptilykil í einni af sigggrónum höndum sínum og vann eins og venjulega.
Ég tók ákvörðun um að vinna líka með bíla. Það hjálpar mér að skynja nálægð hans. Ég snéri mér líka að bæninni og ritningunum, þar sem ég fann frið til að halda áfram í trú og von í fjarveru hans.
„Upprisan er til,“ minnti spámaðurinn Abinadí mig á, „þess vegna hrósar gröfin engum sigri, og Kristur hefur innbyrt brodd dauðans“ (Mósía 16:8).
Dauði afa míns hjálpaði mér að öðlast skilning sem gerði friðþægingu Jesú Krists enn þýðingarmeiri í lífi mínu. Á sama hátt og ég heiðraði afa minn með því að vinna við bíla, gerði ég mér grein fyrir því að við heiðrum Jesú Krist – og getum fundið nálægð hans – þegar við reynum að lifa eins og hann lifði, læra orð hans, miðla fagnaðarerindi hans og vinna „verk föður [hans]“ (Jóhannes 10:37). Að gera það gefur friðþægingu frelsarans dýpri merkingu og eykur traust okkar á honum.
„Þegar við hrópum af sorg eða gleði, þá skilur Jesús Kristur fullkomlega,“ kenndi öldungur Gerrit W. Gong í Tólfpostulasveitinni. „Hann getur verið til staðar á þeim tímum þegar við þörfnumst mest gjafa eilífðarinnar, friðþægingar Jesú Krists, upprisu, endurreisnar.“
Jesús Kristur hefur snúið sorg minni í gleði. Vegna hans og friðþægingar hans, veit ég að ég mun sjá afa minn aftur.