Boðskapur svæðisleiðtoga
Verða heil í Kristi
Eftir stikuráðstefnu sem ég var beðinn að stjórna, kynnti stikuforsetinn mig fyrir dásamlegri og hugrakkri ungri einhleypri konu. Ég komst að því að aðeins vikum áður en hún þjónaði í trúboði var hún greind með alvarlegt bráðakrabbamein. Hún hafði gengist undir sársaukafullar, langar og ífarandi meðferðir sem skildu eftir sig líkamleg og tilfinningaleg ör.
Ég gat bæði séð og fundið angist hennar. Hjarta mitt grét vegna hennar. Hún felldi tár er hún spurði hvers vegna þetta kæmi fyrir hana þar sem hún hafði svo sterka þrá að þjóna Drottni. „Hvernig á ég að halda áfram með líf mitt í svo mikilli óvissu?“ spurði hún. Ég bauð henni að líta á hvern dag lífsins sem gjöf frá Guði. Því þegar allt kemur til alls, veit ekkert okkar hvenær okkar himneski faðir kallar okkur heim. Ef við lifum og elskum dag hvern sem við drögum andann og þjónum Guði okkar, finnum við til blessunar, jafnvel í raunum okkar og þrengingum. Ég deildi nokkrum persónulegum hlutum með henni sem ég hef lært um að koma til Guðs og finna gleði í þrengingum mínum. Andinn hvatti mig til að bjóða henni að stíga meðvitað út fyrir sig sjálfa og ég hvatti hana til að biðja um vökul augu. Að hún megi sjá með augum frelsarans raunir annarra og vera þeim til blessunar á hverjum degi lífs síns.
Sjónarhorn okkar á eigið lífi mun breytast þegar við reynum að þjóna öðrum. Okkar beiski bikar mun verða blessun og sætari, er við leitumst við að skipta út hugarfarinu „því þjáist ég?“ fyrir „hvernig get ég þjónað?“ Við munum finna fyrir stuðningi engla og upplifa lækningamátt frelsarans í ríkari mæli í lífi okkar.
Í Markúsi, 5.kafla, lesum við um konu sem hafði haft blóðlát í 12 ár. Ástand hennar hafði ekki bara áhrif á heilsu hennar heldur var hún félagslega einganruð. Hún hlýtur að hafa verið örvæntingarfull. Þegar hún heyrði af Jesú, trúði hún að með því að snerta klæði hans yrði hún heil. Af trúfesti, rétti hún út hönd sína og snart þau. Jesús snéri sér við leitandi að henni og sagði: „Dóttir, trú þín hefur bjargað þér. Far þú í friði og ver heil meina þinna.“ Þetta er það merkilega, hún var ekki bara líkamlega læknuð, hún „[varð] heil“, endurreist andlega, tilfinningalega og félagslega.
Jesús Kristur býður upp á meira en bara huggun eða lækningu, hann býður upp á heilleika. Við getum öll borið óséðar byrðar: sársauka, veikindi, sorg, fíkn, efa, sektarkennd eða smán. Okkur gæti fundist við vera brotin og í þörf til að vera gerð heil. Þegar við leitum til himins í angist okkar og áköllum Drottin í einlægri trúfastri bæn, heyrir hann í okkur, mætir okkur þar sem við erum og gerir okkur heil.
Dýpri merking þessa heilleika er að vera fullkomin, friðsöm og samræmd okkar himneska föður. Með friðþægingu frelsarans, getum við öll sigrast á líkamlegum og andlegum dauða og orðið heil.
Ég og eiginkona mín, Kirsty, tókum þátt í alþjóðlegu TSU [Til styrktar ungmennum] árið 2022 í Þýskalandi. Eina TSU lagið sem hvað mest er í huga mér. Það heitir „Græðari“. Þetta eru orð úr textanum: „Hann er græðarinn, bjargvættur frá öllum sársauka, frá öllum byrðum og sárum. Ef sársauka þú finnur, leitaðu miskunnar hans, og hann mun laga allt hjarta þitt.“ Ég á erfitt með að synja með án þess að verða tilfinninganæmur og fella tár. Ó, hve ég þarfnast frelsarans til að vera með mér og gera mig heilann! Er við göngum saman á sáttmálsveginum, gengur frelsarinn með okkur. Boð hans er hið sama til okkar allra: „Komið til mín“. Hann þekkir hjarta ykkar. Hann þekkir byrðarnar sem þið berið. Og hann einn getur gert ykkur sannarlega heil.