2025
Drottinn leiddi mig heim
September 2025


„Drottinn leiddi mig heim,“ Líahóna, sept. 2025.

Frá Síðari daga heilögum

Drottinn leiddi mig heim

Þegar ég fylgdi andlegri hvatningu um að snúa aftur til Bólivíu, leiddi Drottinn mig til eilífra fjölskyldublessana.

teikning af flugvél sem hringsólar um hnöttinn

Myndskreyting: David Malan

Á meðan ég vann að doktorsnámi mínu og við tónlistarkennslu í Bandaríkjunum, reyndi ég að lifa eftir fagnaðarerindinu og að finna áhrif Guðs í lífi mínu. Ég var langt frá heimaslóðum og oft einmana, en ég fann elsku hans og rödd leiðbeina mér er ég tók ákvarðanir.

Dag einn barst mér sú tilfinning að ég ætti að fara aftur til heimalands míns, Bólivíu. Að snúa aftur, var ekki ákvörðun sem ég tók af léttúð. Allt gekk vel. Eftir að hafa beðist fyrir, fann ég þó sterklega að ég ætti að snúa aftur, því eitthvað mikilvægt beið mín.

Eftir heimkomu mína til Bólivíu losnaði starf við bakkalársnám í tónlist við einn af bestu háskólum Bólivíu, þar sem ég fékk starf sem prófessor.

Í heimadeild minni hitti ég brátt unga konu sem ég hafði aldrei séð áður. Foreldrar hennar höfðu gengið í kirkjuna þegar ég var að búa mig undir að fara til Bandaríkjanna mörgum árum áður. Við tókum að fara á stefnumót og giftumst, sem hefur verið mikil blessun í lífi mínu.

Fyrir tveimur árum greindist amma mín með krabbamein. Við vorum mjög náin. Þegar ég var ungur, sagði hún við mig: „Þú munt alltaf vera hjá mér og ég veit að þú munt annast um mig.“

Þar sem ég hafði snúið heim, var ég til staðar þegar hún þurfti á mér að halda og varði tíma með henni á hverjum degi síðustu mánuðina. Hún gekk ekki í kirkjuna áður en hún dó, en hafði dálæti á tímaritinu Líahóna, Mormónsbók og aðalráðstefnu. „Ég trúi þessu öllu,“ sagði hún.

Síðar fékk ég þá blessun að vera með foreldrum mínum í Cochabamba-musterinu í Bólivíu, þegar amma mín var innsigluð eiginmanni sínum, sem hafði dáið ungur. Hún giftist aldrei aftur. Mér fannst þau vera þarna í musterinu með okkur, hamingjusöm og saman aftur. Það var dásamleg sjón að sjá foreldra mína standa sem staðgengla fyrir þau í innsiglunarherberginu.

Við vitum ekki hvernig hlutirnir munu þróast í lífi okkar, en Drottinn veit hvar við eigum að vera. Hann veit líka hvernig á að blessa okkur og hann mun leiða okkur til að koma fram í hans stað til að blessa aðra. Ef við reiðum okkur á visku hans og leiðsögn, veit ég að hann getur gert meira úr lífi okkar en við getum sjálf gert.

Heimildir

  1. Sjá Teachings of Presidents of the Church: Ezra Taft Benson (2014), 42.