2025
Spurningar og svör um geðheilsu
September 2025


„Spurningar og svör um geðheilsu,“ Líahóna, sept. 2025.

Frá Vikulegu efni UFF

Spurningar og svör um geðheilsu

Allt sem er ósanngjarnt við lífið verður leiðrétt vegna Jesú Krists.

talbólur

Að finna gleði í fagnaðarerindi Jesú Krists samhliða því að takast á við geðrænar áskoranir, getur stundum virst ómögulegt. Öfl sem erfitt er að hafa stjórn á geta komið í veg fyrir að við skynjum áhrif heilags anda og ef til vill fengið okkur til að efast um ástæðu þess að við höldum áfram að reyna.

Þótt Drottinn hafi ekki opinberað öll svörin við hjartans bænum okkar, þá hefur hann veitt leiðsögn, huggun og von gegnum spámenn sína og postula og aðra kirkjuleiðtoga.

Hér eru nokkur innblásin orð þeirra sem geta hjálpað við að svara algengum spurningum ungs fullorðins fólks. Ef einhverjar þessara spurninga hvíla einnig þungt á hjarta ykkar, vitið þá að fagnaðarerindi Jesú Krists mun færa ykkur frið og von þegar ekkert annað getur það.

Skynja andann

Spurning: Eru geðrænar áskoranir mínar afleiðing syndar?

Svar: „Það er mikilvægt að bera kennsl á að [geðsjúkdómur] er ekki afleiðing veikleika og sjaldnast afleiðing syndar. … Saman getum við brotist gegnum ský einangrunar og smánar svo að blygðunarbyrðinni sé aflyft og kraftaverk lækningar geti átt sér stað.“

Systir Reyna I. Aburto, fyrrverandi annar ráðgjafi í aðalforsætisráði Líknarfélagsins, „Og skjól mér veitir, Herra, dvel hjá mér!“ aðalráðstefna, október 2019.

Spurning: Af hverju er ég ekki að verða betri þegar ég geri það sem er rétt?

Svar: „Gerið ekki ráð fyrir að geta bætt allt. Bætið það sem þið getið. Séu sigrarnir aðeins litlir, verið þá þakklát fyrir þá og sýnið þolinmæði. Drottinn býður oft einhverjum í ritningunum að sýna ‚stillingu‘ eða ‚biðlund‘ ‒ og hinkra við. Að ganga þolinmóð í gegnum ýmislegt, er hluti af okkar jarðnesku reynslu.

Jeffrey R. Holland forseti, starfandi forseti Tólfpostulasveitarinnar, „Sem ónýtt ker,“ aðalráðstefna, október 2013.

Spurning: Hvernig get ég vitað að ég fæ svör við bænum þegar erfitt er að skynja þau vegna geðheilsu minnar?

Svar: „Í öllum þeim óvissuþáttum og áskorunum sem við stöndum frammi fyrir í lífi okkar, krefst Guð þess af okkur að við gerum okkar besta, að við höfum sjálf áhrif, en verðum ekki bara fyrir áhrifum (sjá 2 Ne 2:26) og treystum honum. … Oft á tíðum höldum við ef til vill staðföst áfram í þeirri von og bæn – en án algjörrar fullvissu – að við séum að framfylgja vilja Guðs. En er við heiðrum sáttmála okkar og höldum boðorðin, er við kappkostum enn betur að gera gott og verða betri, þá getum við gengið í trausti þess að Guð muni leiða okkur áfram.“

Öldungur David A. Bednar, í Tólfpostulasveitinni, „Andi opinberunar,“ aðalráðstefna, apríl 2011.

Spurning: Hvernig get ég fundið gleði í fagnaðarerindinu þegar svo erfitt er að upplifa gleði vegna þunglyndis?

Svar: „Þegar þið leitið orða Guðs til að öðlast dýpri skilning á eilífri áætlun Guðs … og reynið að ganga á hans vegi, munið þið upplifa ‚frið Guðs sem er æðri öllum skilningi‘ [Filippíbréfið 4:7], jafnvel mitt í sorginni. Þið munið finna aukna óviðjafnanlega elsku Guðs þenjast út í hjarta ykkar. Dögun himnesks ljóss mun smjúga gegnum skugga rauna ykkar og þið munið taka að upplifa ólýsanlegar dýrðir og undur hins óséða, hins fullkomna himneska sviðs. Þið munuð finna anda ykkar lyftast frá alvarleika þessa heims.“

Öldungur Dieter F. Uchtdorf, í Tólfpostulasveitinni, „Æðri gleði,“ aðalráðstefna, apríl 2024.

Fá aðgang að krafti Jesú Krists

Spurning: Hvernig get ég lært að treysta og reiða mig á Krist þegar mér finnst ég ekki geta treyst sjálfum eða sjálfri mér vegna geðrænna áskorana minna?

Svar: „Því meira sem þið lærið um frelsarann, því auðveldar reynist ykkur að treysta á miskunn hans, óendanlega elsku og eflandi, græðandi og endurleysandi mátt hans. …

„… Þótt allt og allir bregðist í þessum heimi sem þið treystið á, mun Jesús Kristur og kirkja hans aldrei bregðast ykkur.“

Russell M. Nelson, „Kristur er risinn; trú á hann mun færa fjöll úr stað,“ aðalráðstefna, apríl 2021.

Spurning: Veit Kristur raunverulega hvernig mér líður?

Svar: „Mögulega veit enginn fjölskyldumeðlimur, vinur eða prestdæmisleiðtogi – hversu næmur og velviljaður sem hann er – nákvæmlega hvernig ykkur líður eða hefur réttu orðin sem gætu hjálpað ykkur að verða heil. Vitið þó þetta: Einn er sá sem skilur fullkomlega hvað þið gangið í gegnum. Sá er ‚máttugri en jörðin í heild‘ [1. Nefí 4:1] og hann ‚megnar að gera langt fram yfir allt það sem vér biðjum eða skynjum‘ [Efesusbréfið 3:20].“

Öldungur Matthew S. Holland, af hinum Sjötíu, „Hin óviðjafnanlega gjöf sonarins,“ aðalráðstefna, október 2020.

Skynja elsku Guðs

Spurning: Elskar Guð mig enn þótt ég glími við geðræn vandamál?

Svar: „Ef til vill er það kór vonleysisradda og myrkurs sem hefur áhrif á hugsanir ykkar, boðskapur sem segir ykkur að þið séuð of særð og ráðvillt, of veikburða og lítilsvirt, of ólík eða áttavillt til að réttlæta himneska elsku á nokkurn hátt. Ef þið heyrið þessar hugmyndir, heyrið þá þetta: Þessar raddir fara einfaldlega með rangt mál. Við getum full sjálfstrausts virt að vettugi þá bresti sem gera okkur á nokkurn hátt vanhæf þess að hljóta himneska elsku.“

Öldungur Karl D. Hirst af hinum Sjötíu, „Eftirlæti Guðs,“ aðalráðstefna , október 2024.

Spurning: Af hverju tekur Guð ekki þessa áskorun í burtu?

Svar: „Þegar við keppum að friði og skilningi á þessum erfiðu tímum, er nauðsynlegt að hafa í huga að við lifum ‒ og að við völdum að lifa ‒ í föllnum heimi, þar sem stöðugt er reynt á þrautseigju okkar og trúrækni í guðlegum tilgangi. Mikilvægasta fullvissan í áætlun Guðs er loforðið um frelsara, lausnara, sem lyftir okkur sigrihrósandi, fyrir trú okkar á hann, ofar slíkum prófraunum og erfiðleikum, jafnvel þótt gjaldið fyrir það yrði ómælanlegt fyrir bæði föðurinn sem sendi hann og soninn sem kom. Aðeins með því að vera þakklát fyrir þennan guðlega kærleika, munu okkar eigin vægari þjáningar fyrst verða þolanlegar, síðan skiljanlegar og loks frelsandi.“

Jeffrey R. Holland forseti, starfandi forseti Tólfpostulasveitarinnar, „Sem ónýtt ker,“ aðalráðstefna, október 2013.

Velja að lifa

Spurning: „Ef ég veit að næsta líf verður betra, hvers vegna ætti ég þá að halda áfram að lifa þessu lífi?

Svar: „Hverjar sem áhyggjur ykkar eða erfiðleikar eru, þá er dauði af völdum sjálfsvígs augljóslega ekki svarið. Það mun ekki lina sársaukann sem þið finnið eða sem þið haldið að þið valdið. Þar sem heimurinn þarfnast svo sárlega alls þess ljóss sem mögulegt er, lágmarkið þá ekki hið eilífa ljós sem Guð gæddi sál ykkar áður en þessi heimur varð til. Talið við einhvern. Biðjið um hjálp. Eyðileggið ekki líf sem Kristur gaf líf sitt til að varðveita. Þið getið tekist á við baráttu þessa jarðneska lífs, því við munum hjálpa ykkur við það.“

Jeffrey R. Holland forseti, starfandi forseti Tólfpostulasveitarinnar, „Óttast ekki, trú þú aðeins!“ aðalráðstefna, apríl 2022.

„Hver sem barátta ykkar er, bræður mínir og systur, ‒ andleg, tilfinningaleg, líkamleg eða önnur ‒ greiðið þá ekki atkvæði gegn dýrmætu lífinu með því að binda endi á það! Treystið Guði. Haldið ykkur að elsku hans. Vitið að dag einn mun bjartur dagur upp renna og skuggaskímur jarðlífsins að engu verða.“

Jeffrey R. Holland forseti, starfandi forseti Tólfpostulasveitarinnar, „Sem ónýtt ker,“ aðalráðstefna, október 2013.

Stuðningur við ástvini

Spurning: Hvernig get ég stutt ástvin minn sem stendur frammi fyrir geðröskunum?

Svar: „Að afla sér fræðslu um geðsjúkdóma, býr okkur undir að hjálpa okkur sjálfum og öðrum sem gætu átt í baráttu. Opin og heiðarleg umræða við hvert annað mun hjálpa við að draga fram þá athygli sem þetta mikilvæga málefni verðskuldar. Upplýsingar koma þrátt fyrir allt á undan innblæstri og opinberun. Þessar áskoranir, sem eru allt of oft ósýnilegar, geta haft áhrif á hvern sem er og þegar við stöndum andspænis þeim, virðast þær óyfirstíganlegar.

Eitt það fyrsta sem við þurfum að læra er að við erum vissulega ekki einsömul. Ég býð ykkur að læra um geðheilsu í Life Help hluta smáforritsins Gospel Library. Fræðsla leiðir til aukins skilnings, aukinnar viðurkenningar, aukinnar samúðar, aukinnar elsku. Hún getur minnkað harmleik og jafnframt hjálpað okkur að koma á og stjórna heilnæmum væntingum og heilnæmum samskiptum.“

Öldungur Erich W. Kopischke, af hinum Sjötíu, „Varðandi geðheilsu,“ aðalráðstefna, október 2021.

Spurning: Einn af ástvinum mínum tók eigið líf vegna geðrænna vandamála. Hvað verður um slíka?

Svar: „Það er til gömul sértrúarkenning um að sjálfsvíg sé synd og að hver sá sem [deyr með] sjálfsvígi, sé fordæmdur til helvítis að eilífu. Það er algerlega rangt. Ég trúi að í langflestum tilfellum muni koma í ljós að slíkir einstaklingar hafa lifað hetjulegu lífi og að sjálfsvíg muni ekki vera auðkennandi þáttur eilífðar þeirra.“

Öldungur Dale G. Renlund, í Tólfpostulasveitinni, „Renlund: Understanding Suicide“ (myndband), Gospel Library.

piltur við sólsetur

Halda áfram og horfa upp á við

Sum svör sem Guðs veitir okkur, eru öðruvísi en við vonuðumst eftir og sum munu ekki raungerast í þessu lífi. Þótt við vitum ekki allt að þessu sinni um ástæðu þess að mörg okkar glíma við geðrænar áskoranir, þá getum við látið huggast af því loforði að dag einn munum við öðlast fullkominn skilning á öllum hlutum. Viðleitni okkar – sama hversu árangurslaus hún kann stundum að virðast – mun verða þess virði (sjá Galatabréfið 6:9; Kenning og sáttmálar 58:3).

Öldungur Dieter F. Uchtdorf, í Tólfpostulasveitinni, kenndi: „Trúin er falleg vegna þess að hún stenst, jafnvel þótt blessanir berist ekki eins og vonast var eftir. Við sjáum ekki framtíðina, við vitum ekki öll svörin, en við getum treyst Jesú Kristi þegar við sækjum fram og upp á við, því hann er frelsari okkar og lausnari.“

Þegar þið og ástvinir ykkar takist á við margbreytileika geðheilbrigðis, munið þá að allt sem er ósanngjarnt við lífið verður leiðrétt vegna Jesú Krists. Haldið áfram að sækja fram og upp á við – með hann ykkur við hlið getið þið alltaf staðist með von.