2025
Kirkjan í Mongólíu
September 2025


„Kirkjan í Mongólíu,“ Líahóna, sept. 2025.

Kirkjan í Mongólíu

kort sem sýnir musteri í Mongólíu
Sukhbaatar-torgið

Kirkja Jesú Krists hinna Síðari daga heilögu hefur vaxið jafnt og þétt í Mongólíu frá því að trúboðshjón komu fyrst þangað árið 1992. Fyrstu trúskiptingarnir í Mongólíu voru skírðir árið 1993 og fyrsta greinin var stofnuð sama ár. Fyrsta trúboðið var stofnað árið 1995. Í dag hefur kirkjan í Mongólíu:

  • 12.400 meðlimi (hér um bil)

  • 2 stikur, 24 deildir og greinar, 1 trúboð

  • 1 musteri (verður byggt í Ulaanbaatar)

fjölskyldumynd í skógi

Andlegar blessanir

Munkh-Od Altansukh (að ofan til hægri) frá austurstiku Úlan Baatar segir: „Ég öðlast ómetanlega andlega reynslu með ýmsum athöfnum, svo sem ritningarnámi, þjónustu við aðra og musteristilbeiðslu. Ég veit að hið smáa og einfalda í fagnaðarerindinu, sem iðkað er reglubundið, mun hjálpa okkur að þróast í átt að upphafningu sem fjölskylda.“