2025
Fyrir okkar tíma
September 2025


„Fyrir okkar tíma,“ Líahóna, sept. 2025.

Fyrir okkar tíma

Þrjátíu árum eftir að yfirlýsingin um fjölskylduna var kynnt heiminum, eru guðlegar reglur hennar framsýnni og réttmætari en nokkru sinni fyrr.

Gordon B. Hinckley forseti ávarpar söfnuð

Gordon B. Hinckley forseti talar til safnaðar í Santíagó, Síle

Þann 23. september 1995 ávarpaði Gordon B. Hinckley forseti (1910–2008) samkomu Líknarfélagssystra og kynnti skjalið „Fjölskyldan: Yfirlýsing til heimsins.“ Eftirfarandi eru nokkrar athugasemdir hans við það tækifæri:

„Ég trúi að það ætti að vera blessun sérhvers barns að fæðast á heimili þar sem vel er tekið á móti því, að því hlúð, það elskað og blessað með foreldrum, föður og móður, sem eru trygg hvort öðru og börnum sínum. …

Því betur sem þið alið börn ykkar upp að hætti fagnaðarerindis Jesú Krists, af kærleika og miklum væntingum, því líklegra er að friður ríki í lífi þeirra. …

Þar sem svo mikil speki er sett fram sem sannleikur, með svo miklum blekkingum varðandi staðla og gildi, með svo miklu aðdráttarafli og tálbeitum til að óhreinkast hægfara af heiminum, höfum við fundið okkur knúna til að aðvara og aðvara aftur. Til að staðfesta það, gefum við í Æðsta forsætisráðinu og Tólfpostulasveitinni nú út yfirlýsingu til kirkjunnar og heimsins, sem staðfestingu á stöðlum, kenningum og framvindu þeirrar fjölskyldu, sem spámenn, sjáendur og opinberarar þessarar kirkju hafa síendurtekið bent á gegnum sögu hennar. …

Við hvetjum alla til að lesa þessa yfirlýsingu vandlega, af kostgæfni, í bænaranda. Styrkur hverrar þjóðar á rætur innan veggja heimila hennar. Við hvetjum fólkið okkar hvarvetna til að styrkja fjölskyldur sínar í samræmi við þessi tímabæru gildi.“

Heimildir

  1. Gordon B. Hinckley, „Stand Strong against the Wiles of the World,“ Ensign, nóv. 1995, 99, 100, 101.