2025
Ég vil vera eins og þú
September 2025


„Ég vil vera eins og þú,“ Líahóna, sept. 2025.

Frá Síðari daga heilögum

Ég vil vera eins og þú

Ég fann fyrir yfirþyrmandi kvíða sem stafaði af óttanum við að vera vanmáttug – þar til ég baðst fyrir.

teikning af móður að tala við börn sín

Myndskreyting: David Malan

Eftir langan, erfiðan dag, uppfullan af þeirri baráttu sem fylgir því að annast þrjú ung börn, vildi ég bara fara í sturtu og fara í rúmið.

Ég dró andann djúpt og fór inn í herbergið mitt til að slaka á. Það var þá sem fimm ára dóttir okkar kom inn og minnti mig á að það var komið að henni að koma í mánaðarlegt einkaviðtal, sem ég og eiginmaðurinn minn höfðum byrjað að taka við hana og þriggja ára son okkar. Við spurðum þau spurninga um eftirlætishluti þeirra og hvað þeim fannst skemmtilegt í leikskólanum eða kirkjunni. Við minntum þau síðan á að þau væru börn Guðs og að við elskuðum þau.

Ég naut þessara samtala, en mér fannst ég ekki geta það líkamlega eða andlega. Ég var byrjuð að segja dóttur minni að við myndum tala saman annað kvöld, en mér varð ljóst hve mikilvægt samtal okkar væri henni.

„Allt í lagi,“ sagði ég þreytt, „náum í pabba.“

Við sátum þrjú á rúminu og byrjuðum að spjalla. Þegar eiginmaður minn yfirgaf herbergið í augnablik, spurði ég dóttur okkar: „Hvað ætlar þú að verða þegar þú verður fullorðin?“

Ég var ekki viðbúin svari hennar: „Eins og þú.“

Tár spruttu fram í augum mínum og hjarta mitt fylltist tilfinningum. Það snerti mig hvernig dóttir mín sá mig, en ég fann fyrir yfirþyrmandi kvíða sem stafaði af óttanum við að vera vanmáttug. Ég hugsaði um allar ástæður þess að ég var ekki tilvalin fyrirmynd fyrir börnin mín og var mjög meðvituð um vankanta mína.

Síðar um kvöldið, er ég baðst fyrir, bað ég himneskan föður heitt um að hjálpa mér að verða betri fyrirmynd fyrir dóttur mína og verðugri aðdáunar hennar. Skyndilega skall á mér yfirþyrmandi alda huggunar, vonar og elsku. Ég varð meðvituð um þakklætið sem faðir minn á himnum og frelsarinn höfðu fyrir mig, fyrir það eitt að vera móðir sem reyndi að bæta sig. Þeir viðurkenndu viðleitni mína og voru til staðar til að hjálpa mér að verða sú móðir og dóttir sem þeir sjá í mér.

Ég veit af öllu hjarta að Guð þekkir og elskar okkur og að með „hinum virkjandi krafti friðþægingar frelsarans“ getum við orðið það sem við vonumst til að verða.

Heimildir

  1. David A. Bednar, „In the Strength of the Lord,“ Ensign, nóv. 2004, 77.