2025
Dýrmæt Bonsai tré og dýrmætir vitnisburðir
September 2025


„Dýrmæt Bonsai tré og dýrmætir vitnisburðir,“ Líahóna, sept. 2025.

Dýrmæt Bonsai tré og dýrmætir vitnisburðir

Hver vitnisburður er ómetanleg gjöf sem krefst mikillar persónulegrar tryggðar og trúar til að viðhalda fögrum og gleðiríkum.

bonsai tré

Ljósmynd birt með leyfi höfundar

Í miðborg Tókýó, Japan, sá ég nokkuð í fallegum almenningsgarði sem vakti furðu mína. Við hliðina á stíg í gegnum garðinn var veggur sem á voru festir meira en tylft lítilla potta og í hverjum þeirra var Bonsai tré. Hjá hverju hinna einstaklega fallegu trjáa var lítið skilti sem sýndi aldur þess. Flest þeirra voru yfir 100 ára.

Eitt, 390 ára gamalt, bar enn ávöxt. Annað var með tvo samtvinnaða trjástofna – annan dauðan, hinn lifandi. Það var merkilegt nokk 590 ára gamalt.

Ég ímyndaði mér hvernig hvert Bonsai tré hlyti upphaflega að hafa verið ræktað og snyrt af miklu stolti og gleði. Síðar urðu trén líklega erfðagripir fjölskyldunnar. Ég ímyndaði mér aldraðra foreldra sem gáfu börnum sínum þá ábyrgð að næra gætilega Bonsai tré fjölskyldunnar, vernda það gegn skaða og varðveita það fyrir komandi kynslóðir.

Þessi smátré í Tókýó hafa lifað af hræðileg stríð og friðartíma, í gegnum mikla storma og lygna tíma. Þau eru einstakt vitni um hollustu, hefðir og kærleiksríka umhyggju.

Dýrmæt gjöf

Síðan ég sá þessi Bonsai tré, hef ég verið hugfanginn af tilhugsuninni um hvernig fjölskyldur með margar kynslóðir í Kirkju Jesú Krists hinna Síðari daga heilögu byrja á því að einn meðlimur brautryðjendafjölskyldu öðlast dýrmætan vitnisburð um hið endurreista fagnaðarerindi.

Vitnisburður hvers nýs meðlims kirkjunnar hefst þegar þeir „gefa rúm“ fyrir orð Guðs eða gróðursetja það í hjarta sínu og næra það síðan (sjá Alma 32:28). Þegar vitnisburðurinn vex eru gjörðir nýja meðlimsins mótaðar og snyrtar til nýrra lífshátta.

Í gegnum hinar mörgu raunir og storma lífsins, verður nærður vitnisburður um Jesú Krist og kirkju hans sterkari. Vitnisburði, líkt og Bonsai tré, er miðlað og hann gefinn sem dýrmæt gjöf fyrir komandi kynslóðir til að rækta og næra.

Hver kynslóð hefur þá miklu ábyrgð að gera þann vitnisburð að sínum. Þetta er ómetanleg en viðkvæm gjöf. Til að viðhalda honum fögrum og gleðiríkum, þarf mikla persónulega tryggð og trú.

Við vitum ekki hversu stórt tréð var, sem Lehí sá í draumi sínum. Við vitum samt að það var einstaklega fallegt og að hann gat vart beðið eftir að deila ávexti þess með fjölskyldu sinni (sjá 1. Nefí 8). Fjölskylda Lehís varð lifandi dæmi um fjölskyldu sem spannar margar kynslóðir – sem stundum tókst að viðhalda réttlátum hefðum og stundum, því miður, horfði á vitnisburði visna og deyja frammi fyrir mótlæti, óhlýðni og raunum.

Við gleðjumst yfir þeim, hinum fyrstu Síðari daga heilögu í sínum fjölskyldum, sem rækta hinn unga vitnisburð með því að gera og halda helga sáttmála. Við þökkum einnig þessum heilögu brautryðjendum fyrir að miðla elsku sinni til Guðs til komandi kynslóða.

Foreldrar, kennarar, ungmenni og ungt fullorðið fólk sem hafa sunnudagssamkomur í fyrirrúmi, þjónustu í musterinu og mætingu í trúarskóla eldri og yngri deilda og ráðstefnur yfir ungmenni og ungt fullorðið fólk – og hafa frelsarann í fyrirrúmi í lífi sínu – veita þann andlega jarðveg og næringu fyrir unga vitnisburði að þroskast.

Eins og Bonsai trén sem ég sá í Tókýó, þá eru vitnisburðir okkar um Jesú Krist og hið endurreista fagnaðarerindi hans ómetanlegar eigur sem verða ástvinum okkar til blessunar. Þeir geta orðið okkar arfleifð ef við hlúum vandlega að þeim og varðveitum þá og miðlum þeim frá kynslóð til kynslóðar.