„Drottinn hefur tilnefnt fjölskylduna sem grunneiningu kirkjunnar og samfélagsins.“ Fjölskyldur geta samanstaðið af eiginmanni og eiginkonu með börn og þær geta líka verið einstæð manneskja, einstætt foreldri og börn eða eiginmaður og eiginkona án barna. Stundum geta önnur skyldmenni verið hluti af þessum fjölskyldum. Hver sem hjúskaparstaða okkar er eða persónulegar aðstæður, þá tilheyrir hvert okkar fjölskyldu Guðs, hvert okkar tilheyrir jarðneskri fjölskyldu og hvert okkar býr sig undir að verða eilífir foreldrar.
Í árþúsundir hafa spámenn og postular lýst yfir helgi fjölskyldunnar og varað við hörmungum sem koma munu yfir einstaklinga, þjóðir og heiminn allan, ef fjölskyldur eru ekki varðveittar og verndaðar. Hér eru nokkur innblásin orð spámanna og postula um fjölskylduna og mikilvægi skjalsins „Fjölskyldan: Yfirlýsing til heimsins.“
„Fjölskyldan er lykilatriði í áætlun Guðs. Tilgangur áætlunarinnar er í raun að upphefja fjölskylduna. Jörðin var sköpuð til þess að við, sem andabörn föður okkar á himnum, gætum komið til jarðar og hlotið efnislíkama. Við erum hér til að verða sannreynd [sjá Abraham 3:24–25 ]. Okkur er ‚frjálst að velja frelsi og eilíft líf … eða velja helsi og dauða‘ [2. Nefí 2:27 ]. Best af öllu, þá er okkur leyft að verða ástfangin, giftast og bjóða börnum í fjölskyldur okkar“ („Faith and Families ,“ Ensign , mars 2007, 39).
„Þau sem ekki skilja fyllilega kærleiksáætlun föðurins fyrir börn hans, gætu talið fjölskylduyfirlýsinguna einungis stefnuyfirlýsingu sem er breytanleg. Síðari daga heilagir standa hins vegar fast á því að fjölskylduyfirlýsingin, grundvölluð á óumbreytanlegri kenningu, sé skilgreinandi fyrir fjölskyldusambönd, þar sem mikilvægasti hluti okkar eilífu framþróunar getur farið fram“ („Dýrðlegur kærleikur í áætlun föðurins ,“ aðalráðstefna , apríl 2022).
„Fjölskyldueiningin er ekki einungis undirstaða samfélagsins og kirkjunnar, heldur einnig von okkar um eilíft líf. Við byrjum iðkun í fjölskyldunni, þeirri litlu einingu, sem mun hafa áhrif í kirkjunni og samfélaginu, þar sem við lifum í þessum heimi, og sem við síðan iðkum í fjölskyldum sem eru bundnar saman að eilífu með sáttmálum og trúfesti“ („The Family “ [trúarsamkoma Brigham Young háskóla, 5. nóv. 1995], 8, speeches.byu.edu).
Líkamleg nánd einskorðast við hjónabandið
Jeffrey R. Holland forseti
starfandi forseti Tólfpostulasveitarinnar
„Líkamleg nánd er eingöngu ætluð fyrir gift hjón, sökum þess að hún er æðsta tákn algjörrar einingar, ein heild og sameining sem er vígð og skilgreind af Guði. Frá aldingarðinum Eden og áfram, var hjónabandi ætlað að vera algjör samruni karls og konu – hjörtu þeirra, vonir, líf, ást, fjölskylda, framtíð, allt. … Þetta samband er svo algjört, að við notum orðið innsiglun til að koma til skila hinu eilífa fyrirheiti þess“ („Personal Purity ,“ Ensign , nóv. 1998, 76; Liahona , jan. 1999, 91).
„Elska foreldris til barns er eitt sterkasta afl alheimsins. Hún er eitt af því fáa á þessari jörðu sem sannlega getur verið eilíft.
Ykkur finnst ef til vill núna að samband ykkar við barnið ykkar sé ekki upp á það besta. Það er einmitt þá sem máttur frelsarans kemur að málum. Hann læknar hina sjúku og hann getur læknað sambönd. Hann margfaldaði brauð og fiska og hann getur margfaldað elsku og gleði á heimili ykkar“ („Jesús Kristur er styrkur foreldra ,“ aðalráðstefna , apríl 2023).
„Þið [unga fólkið] sem hafið upplifað sársauka við skilnað í fjölskyldu ykkar eða sársauka vegna trúnaðarrofs, munið að þetta byrjar aftur hjá ykkur! Einn hlekkur í kynslóðakeðju ykkar gæti hafa verið rofinn, en hinir réttlátu hlekkirnir og það sem eftir er af keðjunni er engu að síður af eilíflegu mikilvægi. Þið getið styrkt keðjuna ykkar og jafnvel hjálpað við að endurheimta brotnu hlekkina. Það verk verður unnið einn af öðrum“ („A Welding Link “ [heimslæg trúarsamkoma fyrir ungt fólk, 10. sept. 2017], Gospel Library).
„Konur og karlar gegna sérstökum hlutverkum, eins og útskýrt er í „Fjölskyldan: Yfirlýsing til heimsins,“ en ráðsmennska þeirra er jafngild og mikilvæg. Þau hafa sömu möguleika á að fá opinberun fyrir fjölskyldu sína. Þegar þau vinna saman í kærleika og réttlæti, verða ákvarðanir þeirra blessaðar af himni“ („Heit elska til barna föður okkar ,“ aðalráðstefna , apríl 2019).
„Guð [ákvarðaði] að karlar og konur skyldu giftast og fæða börn, og þar með, í samfélagi við Guð, að skapa efnislíkama, sem eru lykill að prófraun jarðlífsins og nauðsynlegir til eilífrar dýrðar með honum. Hann ákvarðaði líka að hjón skyldu stofna fjölskyldu og ala börn sín upp í ljósi og sannleika [sjá Kenning og sáttmálar 93:36–40 ] og vekja þannig von þeirra á Krist“ („Af hverju hjónaband og fjölskylda ,“ aðalráðstefna , apríl 2015).
„Ef við veljum og höfnum því sem viljum meðtaka í yfirlýsingunni, skyggjum við á eilífa sýn okkar og leggjum of mikla áherslu á aðstæður okkar hér og nú. Með því að ígrunda yfirlýsinguna í bæn og með auga trúarinnar, skiljum við betur hvernig reglurnar, sem opinbera áætlun föðurins fyrir börn hans, eru fagurlega tengdar og styðja hver aðra“ („Auga trúarinnar ,“ aðalráðstefna , apríl 2019).