2025
Þú hefur glatt ömmu þína
September 2025


„Þú hefur glatt ömmu þína,“ Líahóna, sept. 2025.

Frá Síðari daga heilögum

Þú hefur glatt ömmu þína

Frænka ömmu minnar hafði ekki hugmynd um hversu mikils virði gjöf hennar og boðskapur var mér.

brúðkaupsmynd af ömmu höfundar

Brúðkaupsmynd af ömmu höfundar

Ég var afar meðvituð um að fjölskylda mín var öðruvísi þar sem ég ólst upp hjá heyrnarlausum foreldrum. Þegar ég var ung var enginn til að túlka fyrir foreldra mína á kirkjusamkomum eða viðburðum, því sóttum við þær sjaldan.

Mér fannst ég alltaf vera utanaðkomandi aðili að horfa inn og þráði að eiga það sama og aðrir í deildinni minni áttu – fjölskyldu sem baðst fyrir og lærði saman.

Undir lok síðasta árs míns í menntaskóla urðum við hins vegar virkari í kirkjunni. Foreldrar mínir voru innsiglaðir í Mesa-musterinu í Arisóna og tvö af fjórum systkinum mínum og ég vorum innsigluð þeim.

Fimm árum síðar var ég að búa mig undir musterisgjöf mína og giftingu í musterinu. Kvöldið fyrir musterisinnsiglun mína fóru bróðir minn og eiginkona hans í musterið til að framkvæma staðgengilsverk fyrir móðurforeldra mína, til að búa þau undir innsiglun þeirra daginn eftir. Næstum 20 ár voru þá frá því að móðir mín snerist til trúar og vildi hún óðfús byrja á ættarsögu fjölskyldu sinnar og musterisverkum.

Daginn eftir voru afi okkar og amma innsigluð hvort öðru og bróðir minn og eiginkona hans voru aftur staðgenglar. Já, þetta var brúðkaupsdagurinn minn, en hann hafði aukna þýðingu fyrir mig. Amma mín og afi, sem ég hafði aldrei hitt, deildu þessum sérstaka degi með mér.

Nokkrum dögum síðar, þegar ég og eiginmaður minn opnuðum brúðkaupspakkana, opnuðum við eina mjög sérstaka gjöf frá frænku ömmu minnar. Hún var trúuð kona sem hafði verið náin ömmu minni. Gjöfin var mynd af ömmu minni á brúðkaupsdegi sínum. Á kortinu sem fylgdi, stóð: „Amma þín er svo ánægð með þig og vakir yfir þér.“

Þessi frænka hafði ekki hugmynd um hversu mikils virði boðskapur hennar var mér. Hún vissi heldur ekki um musterisverkið sem nýlega hafði verið framkvæmt fyrir ömmu mína. Ég vissi á þeirri stundu í hjarta mínu að amma væri ánægð með mig og glöð yfir því að fjölskylda okkar hefði byrjað á hinni mikilvægu ferð ættarsögu og musterisverks.

Nú vorum við eilíf fjölskylda, leidd af móður minni á þeirri braut að safna saman áum okkar til að blessa fjölskyldu okkar handan hulunnar.