2025
Sjö leiðir til að njóta andríkrar tónlistar
Mars 2025


„Sjö leiðir til að njóta andríkrar tónlistar,“ Líahóna, mars 2025.

Kom, fylg mér

Kenning og sáttmálar 25

Sjö leiðir til að njóta andríkrar tónlistar

„Veljið nokkra helga sálma. … „Því að sál mín hefur unun af söng hjartans“ (Kenning og sáttmálar 25:11–12).

kona horfir á síma með sálm á skjánum

Ljósmynd: David Green

Í tímans rás hefur tónlist gegnt mikilvægu hlutverki í tilbeiðslu lærisveina Jesú Krists.

Margir sálmanna í Gamla testamentinu eru lofgjörðarsöngvar til Drottins. Nýja testamentið segir að Jesús og postular hans hafi sungið sálm saman áður en þeir héldu til Getsemane (sjá Matteus 26:30). Sálmar í dag auðga tilbeiðslu okkar á sakramentissamkomum.

Áframhaldandi vinna við nýja sálmabók er spennandi og við getum hlakkað til fleiri nýrra sálma er verkinu vindur fram. Sálmar eru hins vegar ekki eina tegundin af tónlist sem getur veitt okkur innblástur. Gospel Library app kirkjunnar og Sacred Music appið bjóða upp á margs konar tónlist til að upplifa, allt frá hefðbundinni kórtónlist til hressandi nútímatónlistar (maður þarf ekki að vera unglingur til að njóta hljómplatna Strive to Be!). Í þessum öppum er hægt að finna jákvæðar, hvetjandi upptökur, margar sem innihalda nótnablöð sem þið getið spilað eða sungið sjálf.

Hér eru nokkrar hugmyndir ykkur til hjálpar við að innleiða innblásna tónlist í tilbeiðslu ykkar heima – jafnvel þótt þið hafið enga tónlistarþjálfun:

  • Hlustið á upptökur af sálmunum og öðrum hvetjandi söngvum í vikunni. Þær má finna í Gospel Library appinu eða Sacred Music appinu eða í tónlistarsafninu á heimasíðu kirkjunnar.

  • Rannsakið sögurnar í sálmunum og lærið um innblásturinn að baki þeirra.

  • Syngið sálmana og lærið hina ýmsu hluta með því að nota valkostinn Interactive Sheet Music í Sacred Music appinu eða á vefsíðu kirkjunnar.

  • Hlustaðu á Tabernacle Choir eða Strive to Be á þínum uppáhalds hlustunarvettvangi (eins og YouTube, Spotify, Apple Music, Pandora).

  • Lærið að spila sálmana og önnur andrík lög á píanóið eða gítarinn með því að nota nótur eða hljóma sem finna má í Gospel Library appinu eða á heimasíðu kirkjunnar.

  • Lærið og íhugið texta upplyftandi söngva og sálma.

  • Fylgið textanum eftir þegar þið hlustið á flutning Tabernacle Choir on Temple Square. Söngflutning má finna á YouTube rás kórsins.