2025
Guð talaði til hinna fyrri heilögu – talar hann til mín?
Mars 2025


„Guð talaði til hinna fyrri heilögu – talar hann til mín?“ Líahóna, mars 2024.

Ungt fullorðið fólk

Guð talaði til hinna fyrri heilögu – talar hann til mín?

Hann talaði við þá. Hann mun tala til okkar. Við þurfum bara að heyra í honum.

piltur á bæn

Ljósstólpi. Rödd af himnum ofan. Opinberun frá Guði. Það eru margar frásagnir um ungt fullorðið fólk, eins og Joseph Smith og fleiri í Kenningu og sáttmálum, sem bað Guð um hjálp og leiðsögn. Þó að það sé einstaklingsbundin upplifun að hljóta opinberun frá Guði, þá er ferlið skráð aftur og aftur í ritningarnar.

Þótt við eigum ekki dagleg samskipti við spámanninn eða hljótum opinberanir fyrir kirkjuna, þá getur Guð talað til okkar á sama hátt og hann gerði fyrir 200 árum. Þessir heilögu hlutu persónulegan boðskap frá Guði – og við getum það líka.

mynd af Joseph Smith

Auðmjúk bæn Josephs

Hún hófst á spurningu. Hún varð að því sem öldungur Alexander Dushku, af hinum Sjötíu, lýsti sem „yfirþyrmandi sprengingu ljóss og sannleika.“ Auðmjúk bæn Joseph Smith leiddi til dásamlegrar vitjunar himnesks föður og Jesú Krists (sjá Joseph Smith—Saga 1:14–17). Eins dásamlegt og það væri að tala við Guð augliti til auglitis, þá eru slíkar upplifanir sjaldgæfar og heilagar.

Þó öll séum við ekki að fara að fá sama tækifæri og Joseph, „þá getum við líka haft okkar eigin ljósstólpa – einn geisla í einu.“ Þegar við spyrjum spurninga og krjúpum í auðmjúkri bæn, munum við hljóta svar frá Guði með heilögum anda.

skírnarlaug í Ogden-musterinu í Utah

Ljósmynd af skírnarlaug í Ogden-musterinu í Utah

Kraftur musterisins

Hinir heilögu í Kirtland, Ohio, fórnuðu tíma, peningum og vinnu til að byggja hús Drottins. Við vígslu Kirtland-musterisins bað Joseph Smith þess að Guð blessaði þessa trúföstu heilögu með krafti þegar þeir kæmu og tilbæðu (sjá Kenning og sáttmálar 109:13). Musterið átti að vera „hús bænar, hús föstu, hús trúar, hús dýrðar og Guðs“ (Kenning og sáttmálar 109:16).

Á síðari dögum höfum við verið blessuð með musterum um allan heim. Okkur er lofað að við munum hljóta opinberun þegar við förum í musterið. Russell M. Nelson forseti sagði nýlega að „í musterinu getum við ,hlotið fyllingu heilags anda’ [Kenning og sáttmálar 109:15]. Ímyndið ykkur hvað í þessu loforði felst, um að himnarnir séu opnir öllum þeim sem einlæglega leita eilífs sannleika.”

mynd af Hyrum Smith

Spurning Hyrums til spámannsins

Hafið þið einhvern tíma velt fyrir ykkur hvernig það væri að biðja spámanninn að tala við Guð fyrir ykkur? Hyrum, bróðir spámannsins Josephs, gerði einmitt það. Hann hlaut þessa leiðsögn frá Drottni fyrir milligöngu Josephs: „Sjá, þú ert Hyrum, sonur minn. Leita þú Guðs ríkis og allt annað mun við bætast, samkvæmt því sem rétt er“ (Kenning og sáttmálar 11:23).

Stundum kemur leiðsögn í gegnum annað fólk. Russell M. Nelson forseti ráðlagði okkur að „leita leiðsagnar frá röddum sem [þið getið] treyst – frá spámönnum, sjáendum og opinberurum og frá lágværri rödd heilags anda.“ Þótt við getum ekki öll spurt spámanninn spurninga okkar beint, getum við samt fengið svör við persónulegum spurningum okkar.

ljósmynd af Oliver Cowdery

Mynd af Oliver Cowdery, eftir Lewis A. Ramsey

Trúarnám Olivers

Oliver Cowdery var Joseph ómetanleg hjálp við þýðingu Mormónsbókar. En árið 1829 varð hann vonsvikinn. Af hverju gat hann ekki þýtt? Drottinn veitti Oliver ákveðna leiðsögn um hvernig fá mætti svar við spurningu hans – leiðsögn sem á enn við um okkur í dag.

Þegar við höfum spurningu erum við hvött til að kanna hana vel, hafa trú og treysta á hughrif (sjá Kenning og sáttmálar 9:6–9). Tilfinningar okkar geta verið í formi tilfinninga, hlýju eða hugarró. Líkt og öldungur Mathias Held af hinum Sjötíu sagði: „Þegar [rökhugsun og innblástur heilags anda] eru síðan sameinuð í sál okkar, þá sýnir ein heildarmynd raunveruleika hlutanna, eins og þeir í raun eru.“

ung kona les patríarkablessun sína

Ljósmynd: Craig Alan Shelley

Patríarkablessanir Smith-fjölskyldunnar

Patríarkablessanir hafa verið hluti af kirkjunni síðan á tímum Gamla testamentisins (sjá 1. Mósebók 48). Þegar kirkjan var stofnuð á síðari dögum, bauð Guð Joseph að kalla föður hans, Joseph Smith eldri, sem patríarka árið 1834. Þremur dögum seinna kom Smith-fjölskyldan saman svo Joseph Smith eldri gæti gefið hverju barna sinna og mökum þeirra patríarkablessun. Þær blessanir veittu leiðsögn og huggun fyrir líf þeirra.

Til viðbótar við ættarskrána, þá er patríarkablessun „persónuleg ritning fyrir ykkur.“ „Sá sem fær patríarkablessun ætti að varðveita orð hennar, ígrunda þau og lifa verðugur þess að hljóta hinar fyrirheitnu blessanir í þessu lífi og í eilífðinni.“

mynd af Emmu Smith

Emma Smith, eftir Lee Greene Richards

Persónuleg leiðsögn Emmu frá Guði

Sem eiginkona spámannsins, glímdi Emma Smith oft við raunir og átök sem fjölskylda hennar þurfti að þola. Í Kenningu og sáttmálum 25 getum við lesið orð himnesks föður um huggun og styrk til Emmu.

Þegar við leitum að boðskap huggunar fyrir okkur frá himneskum föður, getum við beðið um prestdæmisblessanir. Líkt og James E. Faust forseti (1920–2007), annar ráðgjafi í Æðsta forsætisráðinu, kenndi: „Prestdæmisblessanir geta hjálpað okkur í hinu smáa og stóra í lífi okkar. Ef við gætum, fyrir tilstilli prestdæmisblessana, aðeins greint lítinn hluta þeirrar manneskju sem Guð ætlar okkur að verða, munum við missa ótta okkar og aldrei efast aftur.“

mynd af Joseph F. Smith

Mynd af Joseph F. Smith, eftir Albert Salzbrenner

Ritningarnám Josephs F. Smith

Þegar sjúkdómar, stríð og dauði gengu yfir heiminn árið 1918, leitaði spámaðurinn Joseph F. Smith svara í ritningunum. Eftir að hafa lært orð Péturs í Nýja testamentinu, tók hann að hugleiða og ígrunda. Honum var svipt inn í sýn fyrir kirkjuna, þar sem hann sá frelsarann skipuleggja trúboðsstarf í andaheiminum. (Sjá Kenning og sáttmálar 138.)

Líkt og öldungur Robert D. Hales (1932–2017) í Tólfpostulasveitinni kenndi: „Þegar við viljum tala við Guð, biðjum við. Þegar við viljum að hann tali við okkur, leitum við í ritningunum.“ Ritningarnar eru orð Guðs varðveitt í rituðu máli og á okkar stafrænu öld hafa þau aldrei verið aðgengilegri fyrir okkur. Þegar við lesum og ígrundum ritningarnar, munum við finna þá hjálp sem við þurfum á að halda frá himnum.

piltur situr höfði lútandi

Ljósmynd: John McKinney

Ásett viðleitni til að hlýða á hann

Nelson forseti kenndi: „Við þurfum að hlýða á hann af enn ríkari ásetningi, í þeirri viðleitni okkar að vera lærisveinar Jesú Krists. Það þarf meðvitaða og stöðuga einbeitni til að fylla líf okkar orðum hans, kenningum og sannleika.“ Á sama hátt og hinir fyrri heilögu, getum við meðtekið persónulegan og raunverulegan boðskap frá Guði.

Guð talaði við þá. Hann mun tala til okkar. Við þurfum bara að heyra í honum.