„Gæddur krafti frá upphæðum,“ Líahóna, mars 2025.
Söguleg sýn á hús Drottins
Gæddur krafti frá upphæðum
Líkt og lærisveinunum í Nýja testamentinu var Síðari daga heilögum lofað gjöf kraftar frá Drottni.
Vorið 1836 var Charles Rich trúboði og prédikaði hið endurreista fagnaðarerindi í suðurhluta Ohio. Hann hlýtur að hafa orðið fyrir vonbrigðum að koma til Kirtland, Ohio, 12. apríl – um tveimur vikum eftir vígslu Kirtland-musterisins.
Hann hafði ferðast á gufuskipi meðfram Ohio ánni og síðan gengið næstum 160 km. Hann sá hús Drottins efst á hæð í landslaginu með bláum veggjum og rauðu þaki. En hann var of seinn. Hann hafði misst af vígslunni, hátíðarsamkomunni og hinni fyrirheitnu gjöf kraftar frá upphæðum.
Í september 1830, aðeins nokkrum mánuðum eftir stofnun hinnar endurreistu kirkju, meðtók Joseph Smith opinberun frá Jesú Kristi, þar sem hann hvatti meðlimi kirkjunnar til að safnast saman (sjá Kenning og sáttmálar 29:7–8). Nokkrum mánuðum síðar opinberaði Drottinn ástæðu þess. Hinir heilögu áttu að „fara til Ohio,“ þar sem Jesús lýsti yfir: „Þar mun ég gefa yður lögmál mitt. Og þar mun yður veitast kraftur frá upphæðum — Og þaðan skal hver sem ég óska fara út á meðal allra þjóða“ (Kenning og sáttmálar 38:32–33; skáletrað hér). Kirkjumeðlimir sem heyrt höfðu þessa opinberun hefðu kannast við að þetta tungumál kæmi úr Nýja testamentinu.
Lærisveinar Nýja testamentisins gæddir krafti
Lúkas 24 hefst á örvæntingarstundu. Jesús hafði verið krossfestur og hópur kvenlærisveina hans hafði snúið aftur að gröf hans. Þær sáu að steinhurðinni hafði verið ýtt frá og „fundu þær ekki líkama Drottins Jesú“ (vers 3). Brátt vöktu sendiboðar þeim von: „Hann er ekki hér, hann er upp risinn“ (vers 6).
Síðar birtist hinn upprisni Drottinn lærisveinum sínum og þjónaði þeim. Hann gaf þeim það sem kristnir menn um allan heim þekkja sem „hið mikla boð“ að prédika fagnaðarerindi Jesú Krists. Jesús útskýrði „að prédika skuli í nafni hans öllum þjóðum að taka sinnaskiptum og þiggja fyrirgefningu synda“(vers 47).
Hann bauð hins vegar lærisveinum sínum að fara ekki þegar í stað: „En verið kyrr í borginni, uns þér íklæðist krafti frá hæðum“ (vers 49). Endued (eða „musterisgjöf“ á íslensku) er þýðing á gríska orðinu sem merkir „að klæða.“ Hinir fornu lærisveinar Krists áttu að bíða í Jerúsalem þar til þeir íklæddust krafti frá hæðum. Eftir það áttu þeir að byggja upp ríki Guðs um heim allan.
Drottinn sagði við lærisveina sína, áður en hann steig upp til himna: „Verið kyrr í borginni, uns þér íklæðist krafti frá hæðum“ (Lúkas 24:49).
Síðari daga heilagir gæddir krafti
Síðari daga heilagir komu saman í Ohio á fjórða áratug síðustu aldar af svipuðum ásetningi. Þeir væntu þess að þeim myndi „veitast kraftur frá upphæðum“ (Kenning og sáttmálar 38:32) og að þeir myndu flytja boðskap Jesú um allan heim. Að lokum lýsti Drottinn því yfir að hinir heilögu „fái musterisgjöf sína frá upphæðum í húsi mínu“ (Kenning og sáttmálar 105:33, skáletrað hér; sjá einnig vers 11–12). Samt vissu margir hinna fyrri heilögu ekki nákvæmlega hverju þeir áttu von á.
Ekki löngu eftir að Joseph Smith kallaði og vígði postula Tólfpostulasveitarinnar árið 1835, átti hann fund með þeim um hús Drottins. Joseph varð ljóst að hinir Tólf voru „áhyggjufullir“ og gátu ekki skilið það sem var í vændum. Hann útskýrði að þeir þyrftu gjöf krafts svo að þeir gætu verið „viðbúnir og færir um að sigrast á öllu“ og kennt fagnaðarerindið með krafti. „Þegar þið hafið fengið musterisgjöf,“ útskýrði hann, þá myndu postularnir „prédika fagnaðarerindið öllum þjóðum, kynkvíslum og tungum.“
Skömmu síðar opinberaði Joseph Smith athafnir sem voru gerðar eftir vígslu hinna fornu musterispresta Ísraels. Hver embættismaður prestdæmisins var laugaður og smurður til undirbúnings fyrir musterisgjöfina „með samskonar olíu og á þann hátt sem Móse og Aron og þeir sem stóðu frammi fyrir Drottni til forna.“
Á þessum tíma þýddi gjöf krafts stórkostleg úthelling andlegs krafts á sérstökum hátíðlegum samkomufundi. Líkt og Elijah Able – fyrsti svarti meðlimurinn af hinum Sjötíu í kirkjunni – þá föstuðu embættismenn prestdæmisins, báðust fyrir og neyttu sakramentis kvöldmáltíðar Drottins sem sameiginlegrar máltíðar. Þeir vitnuðu og spáðu og Guð blessaði þá með krafti. Þeir sem voru gæddir krafti lögðu síðan af stað til að byggja upp ríki Guðs með því að prédika hið endurreista fagnaðarerindi. Þrátt fyrir mótlæti nutu þeir verndar á ferðum sínum, efldust í prédikunum sínum og voru blessaðir með fjölskyldum sínum.
Í Kirtland tóku aðeins karlar þátt í hátíðarsamkomunni, þar sem þeim var veittur kraftur frá upphæðum. En á fáeinum árum byggðu hinir heilögu Nauvoo-musterið. Þar afhjúpaði Joseph Smith umfangsmeiri musterisathafnir, sem eru grunnurinn að musterisupplifun okkar tíma. Í Nauvoo var konum jafnt sem körlum veittur kraftur.
Þegar Joseph Smith talaði til Líknarfélagssystranna lofaði hann að í musterisgjöfinni yrði „þeim afhentir lyklar ríkisins,“ þeim sömu „og öldungunum.“ Þótt liðnir hafi verið nokkrir áratugir áður en konur voru kallaðar sem kennslutrúboðar, hafa konur og starf þeirra verið ómissandi þáttur í uppbyggingu Guðs ríkis á jörðu.
Þótt Charles Rich hefði misst af vígslu Kirtland-musterisins, komst hann að því að hann og nokkrir aðrir trúboðar, sem komið höfðu seint til Kirtland, áttu eftir að upplifa musterisgjöfina. Að fyrirmynd hinna fornu presta Ísraelsmanna (sjá 2 Mós 29; 40), var hann þveginn og smurður. Hann kom með hinum, fastaði, baðst fyrir og endurnærðist á kvöldmáltíð Drottins.
„Við spáðum í alla nótt,“ skrifaði Charles. „Því var spáð að sáluhjálp væri rituð á hvern lim og hver liðamót“ líkama hans. „Ég fylltist anda spádóms og mér veittist kraftur frá upphæðum.“
Það sem eftir var ævi sinnar – 47 ár – þjónaði hann sem lærisveinn Jesú Krists við að byggja upp ríki Guðs.
Frá þeim tíma hafa Síðari daga heilagir víða um heim ferðast til húss Drottins til að hljóta kraft frá upphæðum. Líkt og þessir fyrri tíðar heilögu, þá býr musterisgjöfin okkur undir að byggja upp ríki Guðs sem lærisveina Jesú Krists og hljóta upphafningu einhvern daginn fyrir miskunn hans og náð.