„Verið í sambandi við frelsarann,“ Líahóna, mars 2025.
Frá Síðari daga heilögum
Verið í sambandi við frelsarann
Þegar við tókum að stíga niður af tindinum, köstuðust pabbi minn og systir skyndilega af fjórhjólinu!
Myndskreyting eftir David Miles
Eitt sinn fór fjölskylda mín í frí til suðurhluta Kína þar sem við fórum á fjórhjólum í gegnum regnskóg. Þegar við komum í fjórhjólabúðirnar vorum við hissa þegar leiðsögumenn gáfu okkur hlífðarbúninga fyrir allann líkamann með risastórum hjálmum og hlífðargleraugum. Það virtist svolítið mikið fyrir áhugamannareiðmenn á svona heitum, rökum degi, en við klæddumst búnaðinum samt.
Eftir að hafa fengið leiðbeiningar um fjórhjólaakstur, lögðum við af stað og náðum að lokum toppnum í ferðinni. Þar stöldruðum við við við til að drekka vatn og þurrka svitann af andliti okkar.
Leiðsögumaðurinn útskýrði þá að það yrði erfiðara að fara niður. Við þyrftum að vera þétt saman og mynda fjórhjólalest, þar sem hvert fjórhjól snerti ökutækið fyrir framan og aftan til að koma á stöðugleika í hópnum.
Þegar við fórum niður kölluðum við hvert á annað til að samræma aksturinn á niðurleiðinni. Við skildumst þó hægt og rólega að og komið var bil á milli fjórhjólsins míns og fjórhjólsins sem pabbi minn og litla systir, Vivi, óku. Skyndilega köstuðust Vivi og pabbi af fjórhjólinu sínu! Pabbi henti sér rétt í tæka tíð ofaná Vivi til að verja hana fyrir fjórhjólinu sem valt yfir hana.
Okkur var ótrúlega létt þegar við sáum pabba og Vivi standa upp og bursta óhreinindin úr buxunum. Þökk sé hlífðarbúnaðinum sem þau notuðu, hlaut faðir minn einungis minniháttar meiðsli. Vivi var skelfingu lostinn en ómeidd. Þegar við söfnuðumst saman minnti leiðsögumaðurinn okkur ákveðinni röddu á að við yrðum að halda fjórhjólunum okkar tengdum ef við vildum ekki steypast niður brekkuna aftur.
Í lífinu freistumst við stundum til að halda að við getum gert hluti ein og óstudd. Við höldum að við þurfum ekki að íklæðast verndandi alvæpni fagnaðarerindisins, sem geta verið óþægileg. Að sama skapi getur okkur stundum reynst erfitt að vera tengd himneskum föður. Ef við gerum það ekki, eigum við á hættu að ráfa einsömul um ógnvekjandi og varasamar slóðir heimsins, í mikilli hættu á alvarlegum andlegum slysum og meiðslum.
Ef við notum þá vernd sem fagnaðarerindið býður upp á og erum tengd himneskum föður og Jesú Kristi, getum við tekist á við þær áskoranir lífsins sem eru framundan. Sama hve skelfilegur eða ógnvekjandi vegurinn er, þá getum við náð árangri með þeim.