2025
Hver fyllti skírnarlaugina?
Mars 2025


„Hver fyllti skírnarlaugina?“ Líahona, mars 2025.

Frá Síðari daga heilögum

Hver fyllti skírnarlaugina?

Hvernig áttum við að skíra Megan, þar sem ekkert vatn var í boði frá borginni?

eldhúskrani með áfastri eldhússlöngu

Myndskreyting eftir David Miles

Eftir að hafa misst af rútu í Naíróbí í Kenía, ákváðum ég og félagi minn að miðla öllum fagnaðarerindinu sem við sáum á meðan við biðum eftir annarri rútu á svæðið okkar. Við töluðum við yfir 400 manns.

Einn þeirra var Benard, sem vann við byggingarvinnu í nágrenninu. Við gáfum honum Mormónsbók og skoruðum á hann að lesa hana daglega og spyrja Guð hvort hún væri sönn.

Fjórum mánuðum síðar var ég fluttur til Naíróbí. Á fyrstu sakramentissamkomunni minni þar, sá ég Benard. Hann hafði síðan verið skírður og vígður Aronsprestdæminu.

Benard bauð okkur spenntur að heimsækja sig og kenna eiginkonu sinni, Megan. Þegar við hittum Megan, snart hennar mikla trú okkur. Þegar hún baðst fyrir um sannleiksgildi boðskapar okkar, svaraði Guð bæn hennar.

Við buðum Megan að láta skírast næsta sunnudag. Í þeirri viku tilkynnti borgin Naíróbí hins vegar að skrúfað yrði fyrir vatnið í 10 daga! Eftir skírnarviðtal Megan á laugardeginum, báðumst ég og félagi minn fyrir því að skírn hennar yrði framfylgt daginn eftir.

Við föstuðum, ráðguðumst við leiðtoga okkar og reyndum mismunandi leiðir til að fá vatn – en án árangurs. Við bjuggum okkur samt undir skírnina þetta kvöld. Við krupum síðan og báðumst aftur fyrir. Okkur fannst við innblásnir til að festa annan enda slöngu við eldhúskrana samkomuhússins og setja hinn endann í skírnarlaugina. Við fórum með aðra bæn, læstum samkomuhúsinu og fórum heim.

Morguninn eftir, þegar við fórum í samkomuhúsið, var skírnarlaugin full af vatni! Við skoðuðum eldhúskranann, en enn kom ekkert vatn þar úr. Enginn í greininni hafði hugmynd um hvernig skírnarlaugin hafði verið fyllt.

Megan lét skírast þennan dag. Allir í deildinni komu til að vera vitni að skírn hennar og bjóða hana velkomna í kirkjuna. Það kom ekki dropi úr krananum, en augu allra voru blaut af þakklæti.

Russell M. Nelson forseti hefur kennt: „Drottinn mun blessa ykkur með kraftaverkum ef þið trúið á hann og ,efist ekki’ [Mormón 9:21]. Vinnið hin andlegu verk til að leita kraftaverka.“ Ég veit að vegna þess að ég og félagi minn unnum hið líkamlega og andlega erfiði – að biðja, prófa hina ýmsu valkosti og fylgja andlegum innblæstri – sáum við kraftaverk frá Drottni.