„Austur-Kongó,“ Líahóna, mars 2025.
Kirkjan er hér
Austur-Kongó
Þeir sem fyrstir snérust til trúar í Austur-Kongó létu skírast utan lands áður en þeir sneru aftur til heimalands síns og miðluðu öðrum trú sinni. Þegar trúboðar komu til Austur-Kongó árið 1986, voru þegar hópar trúskiptinga að hittast vikulega. Fyrsta stikan var stofnuð árið 1996 og fyrsta musteri landsins var vígt árið 2019. Í dag hefur Kirkja Jesú Krists hinna Síðari daga heilögu í Austur-Kongó:
-
115.000 meðlimi (hér um bil)
-
27 stikur, 289 deildir og greinar, 5 trúboð
-
1 musteri (Kinshasa) og 3 tilkynnt (Lubumbashi, Kananga og Mbuji-Mayi)
Þakklát fyrir sáluhjálparáætlunina
Þegar John Lwamba frá Lubumbashi þjónaði í trúboði, lést eldri bróðir hans. Hann segir: „Það var svolítið erfitt fyrir mig að sætta mig við það, vegna þess að hann var fyrsta manneskjan í fjölskyldunni minni til að deyja. Með hjálp trúboðsforsetans og ritninganna, gat ég sætt mig við það og síðan þá hefur þessi reynsla fært mig nær frelsaranum. Ég veit að eins og hann reis upp, munu allir látnir fjölskyldumeðlimir mínir rísa upp á ný.“