2025
Þjónusta postula: Verk sem enginn annar getur unnið
Mars 2025


„Þjónusta postula: Verk sem enginn annar getur unnið,“ Líahóna, mars 2025.

Þjónusta postula: Verk sem enginn annar getur unnið

Hvernig heimsþjónusta nútímapostula Drottins snertir einstaklinga til góðs.

hópmynd af meðlimum Tólfpostulasveitarinnar

Tólfpostulasveitin stendur sem vitni um Jesú Krist um allan heim. Köllun þeirra er einstök og mikilvæg. Eftir að hafa verið kallaðir til þjónustu, loka þeir dyrum á framúrskarandi starfsferli sínum til að helga allan sinn tíma og hæfileika því að blessa aðra. Hver þeirra kemur með sérstakar gjafir og hæfileika í köllun sína, sem helguð er ævilangri þjónustu, trúarkennslu og lærdómi og að sigrast á áskorunum með trúnni á Drottinn.

Öldungur Ronald A. Rasband í Tólfpostulasveitinni og eiginkona hans, Melanie, höfðu rétt áður komið sér fyrir í sætum sínum til að hlusta á jólatónleika barnabarns síns í skólanum, þegar skólastjórinn kom og spurði hvort öldungur Rasband myndi bjóða áheyrendur velkomna.

Þar sem hann stóð og horfði yfir mannfjöldann og hljómsveitina – öll spennt að dagskráin myndi hefjast – hugsaði hann eingöngu um að bjóða gesti velkomna og óska þeim dásamlegrar kvöldstundar. Þá mundi hann eftir postulalegri köllun sinni að standa ætíð sem sérstakt vitni alls staðar. „Dömur mínar og herrar,“ sagði hann, „ég get ekki misst af því tækifæri [á þessum tíma] fæðingar Krists að bera vitni um nafn hans og um þjónustu hans.“

Hvert sem þeir fara, hvern sem þeir hitta, er boðskapur postulanna staðfesting á Jesú Kristi sem endurleysandi syni Guðs. „Fyrst og fremst erum við alltaf vitni að lifandi raunveruleika Drottins Jesú Krists,“ sagði öldungur David A. Bednar.

„Jesús Kristur er ástæðan fyrir því að við erum hér,“ sagði öldungur Dale G. Renlund við Líknarfélagssystur á trúarsamkomu í London á síðasta ári. „Ég veit algjörlega að hann lifir! … Raunverulega kraftaverkið gerist í lífi ykkar þegar þið vitið það sjálf.“

„Hvernig get ég hjálpað við að byggja upp trú þeirra á Jesú Krist?“ sagði öldungur Quentin L. Cook við meðlimina í Sydney, Ástralíu, er hann greindi frá því hvernig þessi spurning hefur mótað boðskap hans í mörg ár.

Kenningar þeirra bera vott um mikilvægi og þrá sem þeir upplifa að aðrir rísi upp í heilagleika, til að sjá og skynja frelsarann og upplifa friðþægingarnáð hans (sjá 3. Nefí 11:15). Kenningar þeirra eru fylltar kærleika og skilningi. Bón þeirra um að iðrast er ljúf en þó ákveðin. Þrá þeirra til að meðlimir vaxi í því sem Guðs er, er jafn augljós og hún er óumdeilanleg. Þegar fólk heyrir vitnisburð gefinn af postula, geta hjörtu verið snert og líf breyst.

Vitni um Jesú Krist

Hver postuli kemur með einstaka hæfileika og reynslu til að miðla í verkefni sínu. Hver og einn skaraði fram úr á ferli sínum. Sérhver er ólíkur að persónuleika og stíl, en hafa samt sameiginlega eiginleika. Það er gleðilegt, jákvætt og hughreystandi að vera í kringum þá. Oft hrífast þeir sem hitta postula Jesú Krists af háttvísi þeirra og einlægni.

Það er áríðandi fyrir postulana að koma hlutunum í verk – hafa hvöt til að blessa, hughreysta og bera vitni.

„Í þrjá áratugi hefur það verið mér heiður og forréttindi að eiga samskipti við meðlimi Tólfpostulasveitar Kirkju Jesú Krists hinna Síðari daga heilögu,“ sagði Jeffrey R. Holland, starfandi forseti Tólfpostulasveitarinnar. „Án undantekninga, þá hafa allir þessir menn hjálpað mér að verða betri lærisveinn Jesú Krists.

Þegar við komum nýlega saman til að taka sveitarmynd, fann ég fyrir miklu þakklæti fyrir að vera hluti af áframhaldandi reglu lærisveina Jesú Krists, fornra og nútíma lærisveina.

Nöfnin og andlitin … í þessari sveit breytast í tímans rás, en það sem helst er nauðsynlegt er: Hver postuli hefur tekið boðinu um að ,vera sérstakt vitni nafns Krists um allan heim’ [sjá Kenning og sáttmálar 107:23]. Engum gæti dásamlegra verk verið fengið né betri hóp manna fengið að vinna það.“

Öldungur Dieter F. Uchtdorf talar í BYU miðstöðinni í Jerúsalem

Öldungur Dieter F. Uchtdorf talar á sérstakri ráðstefnu í Jerúsalem-umdæminu í BYU miðstöðinni í Jerúsalem, 22. apríl 2023.

„Þakklætistilfinning fyrir frelsarann yfirtók mig í dag er við íhuguðum fórn hans á tveimur sérstökum stöðum,“ sagði öldungur Dieter F. Uchtdorf, er hann skoðaði helga staði í Ísrael árið 2023. „Við fórum í Grafargarðinn,“ þar sem líkami Krists hefði getað verið lagður.

„Við heimsóttum líka svæðið sem sumir telja vera Getsemanegarðinn. Þegar við gengum milli aldargamalla olífutrjáa, hlustuðum við á ritningarvers sem lýstu hátíðlegri fórn frelsarans í okkar þágu, í garðinum og á krossinum.

Hin kvalafulla upplifun Jesú Krists í Getsemanegarðinum og á krossinum verðskuldar fullkomna virðingu okkar og algjöra lotningu. Á líkan hátt, verðskulda þeir dásamlegu atburðir sem áttu sér stað á þriðja degi eftir krossfestingu hans, stað lotningar og eilífs þakklætis í hjörtum okkar og huga.

Sem lærisveinn Krists, er ég blessaður að lýsa yfir vitnisburði mínum um að hann lifir!“

Í færslu á samfélagsmiðlum um lotningu fyrir Drottni, hvatti öldungur Gerrit W. Gong: „Við skulum alltaf tala með hlýju og lotningarfullu þakklæti fyrir verk Guðs og dýrð og verðleika, miskunn og náð Jesú Krists og friðþægingarfórn hans.“

Undirbúningur postula

„Það tekur Drottinn langan tíma að kenna postula,“ sagði Russell M. Nelson forseti. „Þegar sá maður er kallaður sem einn hina Tólf, hefur Drottinn nokkuð einstakt sem hann væntir að sá hinn sami leggi af mörkum.“

Á vegi hvers postula koma prófraunir – „prófraunir í hugrekki og þolinmæði“ – ávallt sálarleitandi, stundum lífshættulegar.

„Það er alltaf prófraun,“ sagði Nelson forseti, er hann lýsti verkinu í þjónustu Drottins. „Eruð þið tilbúin að gera mjög erfiða hluti? Þegar þið hafið sýnt að þið eruð fús til að leggja ykkar af mörkum mun hann hjálpa ykkur.“

Þegar öldungur Cook ávarpaði meðlimi í Ástralíu, greindi hann frá reynslu sinni með því að segja frá því hvernig meðlimir Tólfpostulasveitarinnar hafi upplifað sig óundirbúna og vanmáttuga, líkt og deildarleiðtogum líður stundum. „Það vekur mikla auðmýkt að vera postuli í þjónustu Drottins,“ sagði hann.

Sem nýlega kallaður postuli, útskýrði öldungur Neil L. Andersen að þótt hann fyndi til vanmáttar og auðmýktar, þá lét hann huggast af því að Drottinn hafði blessað sig hið minnsta með einum eiginleika: „Ég veit fullkomlega og örugglega fyrir kraft heilags anda, að Jesús er Kristur, hinn elskaði sonur Guðs.“

„Ég hef verið spurður hvernig það sé að vera nýjasti postulinn,“ sagði öldungur Patrick Kearon daginn eftir að hann var kallaður í Tólfpostulasveitina.

„Ég hef haft allar hugsanlegar tilfinningar og ég veit að þetta er mér ofviða. En ég mun sárbiðja um hjálp. Ég trúi algjörlega á kærleiksríkan himneskan föður og son hans, frelsara okkar. Ég veit að þeir munu hjálpa. Og ég treysti á það. Ég mun líka gera mitt besta til að verða með tímanum eitthvað í líkingu við þann postula sem þið gætuð gert ykkur í hugarlund.

„Svo á þessum degi, þegar ég á enn erfitt með að melta þetta sólarhring eftir kallið, þá er ég einmitt í sömu sporum og þið, ef ykkur finnst þið hafa átt dag sem hefur tekið á … umfram ykkar villtasta ímyndunarafl.“

Kirkjuleiðtogar hitta konung og drottningu Tonga

Russell M. Nelson forseti fór fyrir sendinefnd kirkjuleiðtoga, meðal annars með öldungi Gerrit W. Gong, í heimsókn til konungs og drottningar Tonga árið 2019. Postular eiga fund með tignarmönnum og þjóðhöfðingjum í því hlutverki sínu að opna þjóðunum dyr að fagnaðarerindinu. Það tekur mörg ár að undirbúa postula fyrir hið mikla verkefni þeirra, sagði Nelson forseti.

Sendiherrar í heiminum

Nelson forseti vísaði í Kenningu og sáttmála 107:23, þar sem Drottinn kallar postulana tólf sem „sérstök vitni nafns Krists um allan heim,“ og sagði: „Hver meðlimur hinna Tólf er postuli fyrir allan heiminn. Hann þarf að læra um alla heimshluta, um fólkið og tungumálin og söguna.“

Starf þeirra nær um allan heim. Þeir hitta þjóðhöfðingja, háttsetta menn, fjölmiðla og meðlimi kirkjunnar, bæði á fjölmennum viðburðum og á einfundum. Vinnutíminn getur verið langur og eftirspurnin mikil. Líf þeirra er ekki lengur þeirra eigið sem erindrekar Drottins Jesú Krists.

Á þéttbókaðri 12 daga þjónustuferð á síðasta ári um sex Evrópulönd – þar sem svefn fór oft fram í flugi að nóttu til milli landa – hitti öldungur D. Todd Christofferson leiðtoga ríkisstjórna, trúboða í fullu starfi og kirkjumeðlimi á svæðinu.

Athyglisverður var fundur með menningar- og fjölmiðlaráðherra Króatíu, þar sem hann bauð fram aðstoð kirkjunnar við að hjálpa þeim fjölmörgu flóttamönnum sem streyma til lands hennar frá stríðshrjáðri Úkraínu. „Við … komumst að því að leiðirnar væru margar … sem við gætum unnið saman að, einkum [við að hjálpa] þeim sem eru í mikilli neyð,“ sagði öldungur Christofferson.

Öldungur Gary E. Stevenson heilsar fólki í Tansaníu

Eftir að hafa heimsótt staðarleiðtoga í Dar es Salaam, Tansaníu, til að tilkynna framlag kirkjunnar til umfangsmikils mannúðarverkefnis árið 2024, hitti öldungur Gary E. Stevenson meðlimi og trúboða.

Í níu daga ferð til nokkurra Afríkulanda á síðasta ári, heimsótti öldungur Gary E. Stevenson Makuburi heilsugæslustöðina í Dar es Salaam, Tansaníu, þar sem kirkjan hjálpar við stækkun miðstöðvarinnar. „Þegar við sjáum þjónustuna sem veitt er mæðrum og börnum hér,“ sagði öldungur Stevenson, „verða hjörtu okkar snortin.“

Í tilefni af 30 ára afmæli kirkjunnar í Kambódíu, átti öldungur Renlund fund með forsætisráðherra Kambódíu, sem hann lýsti sem „einstökum einstaklingi.“

Postulinn, sem er fyrrverandi hjartalæknir, sagði forsætisráðherranum að kirkja Jesú Krists væri að gefa nærri 2,2 milljónir Bandaríkjadala svo að hægt væri að bæta hjartamiðstöð við sjúkrahús í Siem Reap, sem staðsett er um 320 kílómetra norður af Phnom Penh, til að bæta heilbrigðisþjónustu fyrir fólk eins og frænda forsætisráðherrans, sem lést úr bráðu kransæðaheilkenni.

Öldungur Dale G. Renlund fundar með forsætisráðherra Kambódíu

Öldungur Dale G. Renlund tekur í hönd Samdech Moha Borvor Thipadei HUN Manet, forsætisráðherra konungsríkisins Kambódíu, í Phnom Penh, þann 22. janúar 2024. Þessi sögulegi fundur er fyrsta skiptið sem kirkjuleiðtogi á fund með leiðtoga ríkisstjórnar konungsríkisins Kambódíu.

„Ég naut þeirra forréttinda að vera með meðlimum, leiðtogum og trúboðum í Úlan Bator, Mongólíu og í Kyoto, Hiroshima, Fukuoka, Sapporo og Tókýó, Japan,“ sagði öldungur Ulisses Soares eftir heimsókn sína til Norður-Asíusvæðisins árið 2024. „Á hverjum fundi eða í persónulegum samskiptum, fann ég fyrir þeirri ótrúlegu elsku og trú sem þetta fólk hefur til Drottins. Dásamlegar frásagnir þeirra af trúskiptum sínum höfðu mikil áhrif á mig og styrktu vitnisburð minn um Jesú Krist og hið endurreista fagnaðarerindi hans á jörðu.

„… Hvílík blessun það var fyrir mig að finna anda Drottins og kærleika hans meðal þessara miklu lærisveina Krists í þessum löndum.“

Verk postulanna

Að opna dyr fagnaðarerindisins í ýmsum löndum er lykilatriði postullegrar ábyrgðar: „Hinir tólf eru sendir út og hafa lykla, sem ljúka upp dyrum að boðun fagnaðarerindis Jesú Krists“ (Kenning og sáttmálar 107:35).

Samkvæmt reynslu Nelsons forseta sem meðlims hinna Tólf, hafa dyr að fagnaðarerindinu verið opnaðar á ólíkan hátt. Stundum hafði andinn áhrif á leiðtoga ríkisstjórnarinnar, allt þar til „hann tók að skipta um skoðun varðandi okkur,“ sagði Nelson forseti. Í annað skipti var maður nokkur sem vildi ekki ræða við kirkjuleiðtoga leystur frá störfum og Drottinn sá okkur fyrir „manni sem við gátum talað við.“ Í báðum tilvikum sagði Nelson forseti: „Boðskapurinn [frá himnum] til mín var sá sami: ,Æfðu hjarta þitt. … Taktu áhættuna. Þegar þú kemst ekki lengra skal ég hjálpa þér.“

Gleðin sem felst í verki postula felst í því að finna jafnvægi milli þeirra krefjandi þarfa að tala við stóra hópa og þjóna einstaklingnum. Þeir vitja meðlima á heimilum sínum til að veita blessun, tjá þakklæti eða veita nauðsynlega leiðsögn.

Öldungur Bednar sagði: „Drottinn sendir meðlim Tólfpostulasveitarinnar á ákveðna staði á ákveðnum tímum þar sem við mætum trúföstum Síðari daga heilögum og öðrum sem eiga oft erfitt eða þarfnast huggunar og stuðnings Guð skipuleggur þessi samskipti.“

Öldungur David A. Bednar tekur í hönd drengs

Öldungur David A. Bednar og eiginkona hans, Susan, heilsa fólki eftir að hafa talað á samkomu í Toluca, Mexíkó, 5. nóvember 2023.

Stundum er þjónusta þeirra afar opinber, líkt og þegar öldungur Stevenson tók þátt í áberandi blaðamannafundi í Naíróbí, Kenía, sem var sendur út í beinni útsendingu í ríkissjónvarpinu. „Spurning sem gæti verið í … huga ykkar er: ,Hvað er postuli?’” sagði öldungur Stevenson í útsendingunni. „Við … erum kallaðir til þess að fara til þjóða heims og bera vitni um guðdómlegt sonarhlutverk Jesú Krists, sonar hins lifandi Guðs.“

„Þetta snýst allt um hann,“ sagði öldungur Dieter F. Uchtdorf. „Við erum fulltrúar hans. Þetta snýst allt um Guð og mikilleika hans og mikilvægi hans fyrir hamingju barna hans.“

Verk þeirra eru stundum nær heimilinu – bókstaflega. Öldungur Bednar var dag einn að gera við þakið á heimili sínu og fór í verslun á staðnum til að kaupa efni. Hann var í vinnufötum: hversdagslegum buxum og skóm, stuttermabol og með hafnarboltahatt.

„Maður kom til mín þar sem ég var að tína til efnið mitt og sagði: ,Öldungur Bednar, dulargervið virkar ekki.’ Við hlógum og svo spurði hann: ,Er þér sama þótt ég spyrji þig spurningar?’

„Ég svaraði: ,Það er jú ástæðan fyrir því að ég er hér.’

„Hann svaraði með spurningu: ,Hvað meinarðu?’

„Ég sagði: ,… Ég er hér vegna þess að Guð vissi að við myndum hittast í þessari verslun og að þú hefðir eitthvað sem þú vildir spyrja um. Vertu svo vænn að segja mér frá spurningunni þinni.’

„Við töluðum saman á ganginum í um það bil 15 mínútur og ég reyndi að hjálpa honum að finna svarið við spurningu hans. Var það bara tilviljun að ég hitti þennan góða mann í búðinni? Eða var þessi þáttur guðlega skipulagður af kærleiksríkum frelsara sem … brást við áhyggjuefni trúfasts manns – eins manns?

Ég trúi að í verki Drottins sé ekkert til sem heitir tilviljun. Verðmæti sálna er mikið í augum Guðs.“

Öldungur Neil L. Andersen með fólki á Filippseyjum

Öldungur Neil L. Andersen stillir sér upp fyrir ljósmynd 22. febrúar 2024, í Jaime Cardinal Sin Village, Manila, Filippseyjum, þar sem kirkjan gerði við þrjá vatnstanka.

Takast á við áskoranir í trú á Drottin

Mikil og flókin vandamál blasa við postulum okkar tíma. Þeir leita innblásturs er þeir kenna og þjóna í heimslægum söfnuði rúmlega 17 milljóna kirkjumeðlima, sem takast á við áskoranir eins og stjórnmálaólgu, klám, linnulausan þrýsting á samfélagsmiðlum eða fjárhagsóvissu. Átök milli þjóða trufla starfið. Rof hefðbundinna gilda ógnar félagslegum stöðugleika.

Meðlimir hinna Tólf eru vel vakandi yfir ábyrgð sinni og óðfúsir að byggja upp trú í heimi sem verður sífellt vantrúaðri.

„Það er greinilegt að kraftur Drottins hreyfir við leiðtogum kirkjunnar og ýtir við þeim með … áminningu um að verkið sé áríðandi,“ sagði M. Russell Ballard (1928–2023), starfandi forseti Tólfpostulasveitarinnar. „Spurningin sem við verðum öll að spyrja okkur að er ,Erum við að halda í við [leiðtoga okkar]?’ Við verðum öll að vera viðbúin því að svara þeirri spurningu. Ég fullvissa ykkur um að þetta er efni töluverðrar umræðu í Tólfpostulasveitinni. … Þetta er ekki tíminn til að slaka á eða skila ekki árangri í köllunum okkar. …“

„… Við verðum að vera tilbúnir til að halda í við leiðtoga okkar, að stika í hvert þeirra stóra skref.“

„Við, sem fylgjendur Jesú Krists, keppum að því að líkjast frelsaranum og fylgja fordæmi hans í öllu sem við gerum,“ sagði öldungur Uchtdorf. „Frá því augnabliki sem við stígum fæti á veg lærisveinsins, taka sýnilegar og ósýnilegar blessanir frá Guði að berast okkur.

Hvar sem við erum, þá getum við gengið veg lærisveinsins í dag. Verum auðmjúk; við skulum biðja til föður okkar á himnum af öllu hjarta og tjá honum þrá okkar til að vera í nálægð hans og læra um hann.“