2025
Athugið með hliðið
Mars 2025


„Athugið með hliðið,“ Líahóna, mars 2025.

Frá Síðari daga heilögum

Athugið með hliðið

Þegar ég þjónaði á búgarði, lærði ég dýrmæta lexíu um að fylgja alltaf innblæstri heilags anda.

tveir menn tala saman í hesthúsi á búgarði

Ljósmynd af höfundi á búgarði, eftir Shaun Sutton

Þegar dró að lokum tíma míns sem ungur þjónustutrúboði, fylgdi ég hvatningu um að þjóna tvo daga vikunnar á ferðaþjónustubúgarði í Utah, fyrir fjölskyldur hersins og eftirlifendur. Ég hafði nákvæmlega enga reynslu af neinu sem tengdist búskap, en ég var spenntur.

Snemma í dvöl minni þar var ég beðinn um að þrífa hestabásana. Góður vinur minn og félagi, sem ég kenndi með á kvöldin, öldungur Saltern, fékk það verkefni að sýna mér hvað mér bar að gera.

Einn daginn þegar ég kom að síðasta básnum til að þrífa, fylgdi ég öldungi Saltern inn. Í huga mínum fékk ég mildan innblástur um að spyrja hvort loka ætti hliðinu að baki okkur. Ég ýtti hugsuninni frá mér og fór að þrífa.

Hesturinn á básnum, Shrek, var einn stærsti hesturinn á búgarðinum. Hann byrjaði að færa sig til taugaóstyrkur er við þrifum. Skyndilega skaust Shrek út úr básnum í gegnum opið hliðið og hljóp fram hjá hinum hestunum fyrir utan í gerðinu.

Sem betur fer greip einhver með reynslu á búgarðinum fötu af höfrum og lokkaði hestinn fljótt aftur til baka. Þegar hún setti Shrek aftur á básinn leit hún á mig og spurði skemmtilega: „Hvað lærðum við?“

Augljós lexía var að loka alltaf hliðinu. Ég var minntur á ritningarvers sem ég hafði lesið þennan sama morgun, sem kenndi mér að „[láta] undan umtölum hins heilags anda“ (Mósía 3:19).

Þegar ég og öldungur Saltern komum inn í bás Shreks, hafði ég hunsað hvatningu heilags anda um að loka hliðinu. Ég hafði fengið andann til að leiðbeina mér einungis um það sem ég taldi vera „andlega“ hluti sem tengdust ritningunum eða boðorðunum. Þessi upplifun gerði mig auðmjúkan. Mér varð ljóst að þekking andans var meiri en ég hafði gert mér grein fyrir – jafnvel hvað varðaði búskap!

Thomas S. Monson forseti (1927–2018) kenndi: „Hafið í huga að þetta verk er ekki bara ykkar eða mitt. … Þegar við erum í erindum Drottins, eigum við rétt á hjálp hans.“

Ég var kannski ekki að kenna fagnaðarerindið á búgarðinum, eins og ég gerði um kvöldið með öldungi Saltern, en ég átti rétt á guðlegri hjálp og handleiðslu – jafnvel við hreinsun hestabása.