2025
Finna sig tilheyra í áætlun Guðs og í musterinu
Mars 2025


„Finna sig tilheyra í áætlun Guðs og í musterinu,“ Líahóna, mars 2025.

Finna sig tilheyra í áætlun Guðs og í musterinu

Þrjú grundvallaratriði minna okkur á að við getum öll hlotið þær blessanir sem Guð býður börnum sínum.

Barranquilla-musterið, Kólumbíu

Ljósmynd af Barranquilla musterinu í Kólumbíu, eftir Leslie Nilsson

Ég var í hópi meðlima kirkjunnar. Við höfðum aldrei hist áður, en öll áttum við eitt sameiginlegt: Við vorum einhleyp.

Nú vil ég aðeins fara til baka. Í fagnaðarerindi Jesú Krists erum við ekki skilgreind eftir merkimiðum. Hið sanna auðkenni okkar, kenndi Russell M. Nelson forseti, er að við erum „bókstaflega andabörn Guðs.“ Ég get skilið að af nauðsyn köllum við suma meðlimi kirkjunnar einhleypa. Það eru hagnýtar ástæður fyrir því. En stundum, eins og virtist vera raunin í þessum aðstæðum, getur það stuðlað að því að meðlimir upplifi sig sem utanaðkomandi. Það getur jafnvel gert þeim erfitt fyrir að finnast þau vera meðtalin í því að hljóta allar blessanir sáluhjálpar og upphafningar Guðs.

Við vorum nefnilega að tala um musterið – og sumum í hópnum fannst það að vera einhleypur koma í veg fyrir að þau myndu njóta blessana musterisins. Ég skil; þegar þið eruð ekki gift í fjölskyldumiðaðri kirkju, getur verið erfitt að sjá hvernig þið fallið í hópinn. En ég veit líka að Drottinn leggur ekki dóm á það hvort einstaklingur sé verðugur þess að hljóta fyrirheitnar blessanir byggðar á útliti eða merkimiða. Hann „lítur á hjartað“ (1.Samúelsbók 16:7) og gerir blessanir sína öllum tiltækar sem kjósa að fylgja honum. Ég trúi þessu af öllu hjarta. Með það í huga, þá eru hér þrjú grundvallaratriði sem hjálpa hinum einhleypu Síðari daga heilögum vita að þau tilheyra í áætlun Guðs og í musterinu.

1. Guð hannaði áætlun sína fyrir hvert barna sinna.

Þar sem þörf er á hinum nýja og ævarandi hjónabandssáttmála til upphafningar, gæti virst sem áætlun Guðs hafi ekki verið gerð fyrir hina einhleypu (sjá Kenning og sáttmálar 131:1–3). Öldungur Patrick Kearon kenndi: „Hin fallega áætlun föður okkar, já, ,stórkostleg’ áætlun hans, er hönnuð til að leiða ykkur heim, ekki til að halda ykkur úti. Enginn hefur sett upp vegatálma og komið einhverjum þar fyrir til að snúa ykkur frá og vísa í burtu. Í raun er því nákvæmlega öfugt farið. Guð leitar ykkar linnulaust. Hann ,vill að öll börn sín velji að snúa aftur til sín’ og hann gerir allt sem hann getur til að leiða ykkur til baka.“

Guð ætlar ekki að senda þá sem eru einhleypir í burtu svo þau njóti ekki blessananna sem hann býður. M. Russell Ballard forseti (1928–2023), starfandi forseti Tólfpostulasveitarinnar, kenndi: „Ritningar og spámenn síðari daga [staðfesta] að allir sem halda sáttmála fagnaðarerindisins af trúmennsku fái tækifæri til upphafningar.“ Sérhver sál er mikils virði í augum himnesks föður – svo mikils virði að hann sendi eingetinn son sinn til að deyja og endurleysa okkur öll frá synd, svo við megum hljóta gjöf eilífs lífs (sjá Jóhannes 3:16–17; Kenning og sáttmálar 18:10–12).

Ef lífið þróast öðruvísi en búist var við, gætum við farið að efast um tilgang okkar í áætlun Guðs. Áætlun hans tryggði þó aldrei að líf okkar allra yrði það sama. Við vitum ekki hvaða gleði, vonbrigði, velgengni eða sorg mun verða á vegi okkar. Dallin H. Oaks forseti, fyrsti ráðgjafi í Æðsta forsætisráðinu, sagði: „Margt er það sem við ekki þekkjum, svo eina áreiðanlega öryggið er traust á Drottni og elsku hans fyrir börn sín.“

Við vitum kannski ekki af hverju leið okkar lítur út eins og hún er núna. Að treysta á Guð og elsku hans getur aukið skilning á því hvernig hann hannaði áætlun sína fyrir öll börn sín – líka ykkur.

kona stendur fyrir framan Kristsstyttuna

Ljósmynd í gestamiðstöð Rómarmusterisins á Ítalíu, eftir Massimo Criscione

2. Musterið geymir persónulegar blessanir fyrir alla.

Við gætum hugsað okkur að innsiglanir eigi aðeins við um eiginmann og eiginkonu. Auk þess að sameina hjón Drottni, sameina innsiglanir fjölskyldur að eilífu. Öll börn Guðs geta notið eilífra blessana með innsiglunum ef þau halda sáttmála sína.

Innsiglunarvaldið staðfestir allar helgiathafnir prestdæmisins á himni og jörðu. Öldungur D. Todd Christofferson af tólfpostulasveitinni kenndi: [Innsiglunarvaldið] gerir aðgengilega sáluhjálp einstaklinga og upphafningu fjölskyldna fyrir öll börn Guðs, hvar og hvenær sem þau kunna að hafa lifað á jörðinni. Engin önnur guðfræði eða heimspeki eða vald fær jafnast á við slíkt altækt tækifæri. Þetta innsiglunarvald er fullkomin birtingarmynd réttlætis, miskunnar og kærleika Guðs.“ Blessanirnar sem Drottinn býður eru svo yfirgripsmiklar að þær standa öllum til boða sem vilja gera og halda sáttmála við hann.

Við gætum skilið betur hvernig áætlun Guðs er altæk þegar við tilbiðjum í húsi Drottins. Nelson forseti kenndi: „Tími varinn í musterinu mun hjálpa ykkur að hugsa himneskt og skilja hver þið í raun eruð, hver þið getið orðið og hvers konar lífi þið getið lifað að eilífu.“ Hann útskýrði einnig að tilbeiðsla í musterinu myndi veita okkur vernd, sterkari vitnisburð, huggun, persónulega opinberun, aukna þekkingu og kraft og aukinn skilning á áætlun Guðs.

Hvort sem við erum gift eða einhleyp, þá býr musterið yfir andlegum forréttindum okkar allra – það er staður sem styrkir og eflir alla sem þrá nálægð við Guð. Fyrir frekari upplýsingar, sjá þá hliðarstikuna „Empowered by Temple Worship.“

3. Í musterinu getum við dýpkað samband okkar við Jesú Krist.

Í musterinu er aðaláherslan lögð á Jesú Krist. Hann er þungamiðja áætlunar Guðs og er ástæða þess að við getum öll hlotið sáluhjálp og upphafningu. Nelson forseti kenndi: Hús Drottins er hús lærdóms. Þar kennir Drottinn að sínum hætti. Þar kennir hver helgiathöfn um frelsarann. Þar lærum við hvernig svipta skal hulunni frá og eiga skýrari samskipti við himininn. Þar lærum við að hasta á andstæðinginn og nota prestdæmiskraft Drottins, okkur og ástvinum okkar til styrktar. Hve óðfúslega við ættum að leita skjóls þar.“

Við getum fundið athvarf og fundið samkennd í musterinu með því að leita frelsarans í helgiathöfnum og sáttmálum. Þegar við gerum það, munum við finna staðfestingu á því að hann elskar okkur og að „allir eru jafnir fyrir Guði“ (sjá 2. Nefí 26:33). Vegna elsku sinnar til okkar, vill hann að við myndum „ævarandi tengsl“ við sig og fáum aðgang að „sérstakri tegund elsku og náðar“ fyrir tilstuðlan sáttmála okkar. Ef við gerum og höldum sáttmála musterisins, getum við styrkt samband okkar við hann og hlotið „von, gleði og bjartsýni allt okkar líf“– hverjar sem aðstæður okkar eru.