„Endurreisn sakramentisins,“ Líahóna, mars 2025.
Kom, fylg mér
Endurreisn sakramentisins
Þegar Kirkja Jesú Krists hinna Síðari daga heilögu var stofnuð árið 1830, endurreisti Drottinn hina helgu athöfn sakramentisins. Hann bauð fólki sínu að „koma oft saman til að neyta brauðs og víns í minningu Drottins Jesú“ (Kenning og sáttmálar 20:75).
Þessi tímalína sýnir hvernig sakramentið hefur verið innleitt á hinum ýmsu tímum. Þótt fólkið og staðirnir breytast, þá hjálpar sakramentið lærisveinum Jesú Krists að hafa hann ávallt í huga og hafa anda hans með sér.
|
Nýja testamentið |
Mormónsbók |
Kenning og sáttmálar |
Dagurinn okkar |
Þegar Jesús Kristur kemur aftur | |
|
Hver |
Jesús Kristur og Nefítarnir |
Joseph Smith og fyrstu meðlimir hinnar endurreistu kirkju Jesú Krists |
Síðari daga heilagir um allan heim |
Jesús Kristur og „[allir þeir], sem faðir [hans] hefur gefið [honum] úr heiminum“ (Kenning og sáttmálar 27:14) | |
|
Hvað |
Brauð og vín í minningu um líkama og blóð Jesú (sjá Matt 26:26–28; Markús 14:22–24; Lúkas 22:17–20) |
Brauð og vín í minningu um líkama og blóð Jesú (sjá 3. Nefí 18) |
Brauð og vín, blessuð með sérstökum bænum í Kenningu og sáttmálum 20:77, 79 |
Yfirleitt brauð og vatn, blessuð með sérstökum bænum sem finna má í Kenningu og sáttmálum 20:77, 79 |
Samkoma leidd af Jesú Kristi, þar sem hann „mun drekka af ávexti vínviðarins með [okkur] á jörðu“ (Kenning og sáttmálar 27:5) |
|
Hvenær |
Hófst í kringum 33 e.Kr., nóttina fyrir krossfestingu Jesú Krists |
Hófst í kringum 33 e.Kr., eftir upprisu Jesú Krists |
Hófst þegar kirkjan var stofnuð 6. apríl árið 1830 |
Vikulega á sakramentissamkomum |
Þegar Jesús Kristur kemur aftur til jarðar |
|
Hvar |
Í „loftsal [miklum]“ í húsi í Jerúsalem (Markús 14:15) |
Í „landi Nægtarbrunns“ (3. Nefí 11:1) |
Á Whitmer-heimilinu í Fayette, New York, Bandaríkjunum |
Í samkomuhúsum víða um heim |
„Á jörðu“ (Kenning og sáttmálar 27:5) |
|
Hvers vegna |
Að gefa fólki tækifæri til að minnast Jesú Krists og „endurnýja sáttmála sinn um að taka á sig nafn frelsarans, að hafa hann ávallt í huga og halda boðorð hans.“ | ||||
Ígrundið
Hvernig styrkir það samband ykkar við Jesú Krist að þekkja tilgang sakramentisins?