2025
Halda sér fast við sáttmála okkar
Mars 2025


„Halda sér fast við sáttmála okkar,“ Líahóna, mars 2025.

Notkun tímarita kirkjunnar

Halda sér fast við sáttmála okkar

brosandi kona situr á steinvegg

Greinar í kirkjutímaritum þessa mánaðar geta hjálpað ykkur er þið leitist við að „halda ykkur fast við þá sáttmála“ sem þið hafið gert (Kenning og sáttmálar 25:13).

Læra í þessari útgáfu

Heyrið rödd himins!

Á bls. 2, minnir öldungur Neil L. Andersen, í Tólfpostulasveitinni, okkur á að hávaði heimsins getur truflað okkur frá rödd andans. Eru einhverjar truflanir í lífi ykkar sem gera ykkur erfitt fyrir með að tengjast Guði? Þið gætuð sett ykkur markmið í þessum mánuði um að draga úr þessum truflunum, til að mynda með því að verja meiri tíma í að tilbiðja í musterinu eða fasta frá samfélagsmiðlum.

Hjálpið öðrum að hljóta blessanir Guðs

Greinin á bls. 18 fjallar um það hvernig meðlimir kirkjunnar geti fundið gleði og að þeir tilheyri í musteri Drottins, burtséð frá hjúskaparstöðu. Hvað getið þið gert til að hjálpa trúsystkinum ykkar að skilja og meðtaka þær blessanir sem himneskur faðir hefur boðið öllum börnum sínum sem halda sáttmála við hann?

Taka á móti og bera kennsl á opinberun

Lesið greinina á bls. 44 , eftir öldung Christophe G. Giraud-Carrier, af hinum Sjötíu, til að finna fimm hugmyndir til að hljóta og bera kennsl á opinberun. Á hvaða sviðum lífsins þarfnist þið guðlegrar leiðsagnar? Íhugið að beita reglunum sem öldungur Giraud-Carrier kenndi þegar þið leitið innblásturs frá Guði í þessum mánuði.