„Uppbygging Nauvoo,“ Barnavinur, september 2025, 26–28.
Sögur úr ritningunum
Uppbygging Nauvoo
Drottinn bauð hinum heilögu að safnast saman á nýjum stað. Það var nálægt stórri á, þar sem landið var blautt og forugt. Það virtist ekki góður staður til að byggja borg. Spámaðurinn Joseph Smith vissi þó að með hjálp Drottins gætu þau gert hana fallega.
Hinir heilögu lögðu hart að sér til að gera þetta að góðum stað til að búa á. Joseph kallaði bæinn Nauvoo, sem þýðir „fallegur staður“.
Drottinn vildi að hans heilögu byggðu musteri í Nauvoo. Fólkið var fljótt farið að vinna.
Drottinn hafði miklar blessanir að gefa fólki sínu. Í musterinu myndu þau gera sáttmála við Drottin eða gefa honum sérstök loforð. Þau myndu líka læra um sæluáætlun himnesks föður fyrir öll börn hans.
Hinir heilögu lögðu hart að sér við að reisa musterið. Þetta tók langan tíma, en þau voru spennt að læra um hin sérstöku loforð sem Drottinn hafði fyrir þau í musteri sínu.