2025
Fylgja Jesú í Púertó Ríkó
September 2025


„Fylgja Jesú í Púertó Ríkó,“ Barnavinur, september 2025, 10–11.

Fylgja Jesú í Púertó Ríkó

Kynnumst Dariel

Brosandi drengur

Dariel fylgir Jesú með því að lesa ritningarnar og biðjast fyrir. Hann segir: „Ég nýt þess að fylgja Jesú með því að læra meira um hann.“

Dariel reynir líka að fylgja Jesú með því að þjóna öðrum. Hann hjálpar kennara sínum með því að þrífa fartölvurnar eftir kennslustund. Hann þjónar fjölskyldu sinni með því að sjá um gæludýr þeirra og hjálpa til við að búa til kvöldmat. „Ég er glaður þegar ég fylgi Jesú,“ segir hann.

Um Dariel

Drengur með pabba sínum og tveimur köttum

Aldur: 9 ára

Frá: Caguas, Púertó Ríkó

Tungumál: Spænska, enska

Markmið: 1) Reka eigið fyrirtæki. 2) Hanna tölvuleiki.

Áhugamál: Spila tölvuleiki og hjóla

Fjölskylda: Dariel, mamma, pabbi, bróðir, systir

Drengur með pabba sínum, mömmu, eldri bróður og yngri systur
Drengur að leika við yngri systur sína og pabba

Það sem Dariel heldur upp á

Drengur að lesa ritningar

Frásögn í ritningunum: Þegar Jesús Kristur reis upp

Frídagur: Jólin

Matur: Arroz con habichuelas (hrísgrjón með baunum)

Ávöxtur og grænmeti: Jarðarber og sætar kartöflur

Litir: Hvítt, svart, rautt

Barnafélagslag:Þegar ég skírist“ (Barnasöngbók, 53)

PDF-síða