2025
Kraftur Guðs er gjöf!
September 2025


„Kraftur Guðs er gjöf!“ Barnavinur, september 2025, 20–21.

Kraftur Guðs er gjöf!

Aðlagað úr „Lifið í samræmi við forréttindi ykkar,“ aðalráðstefna, okt. 2024.

Emma Smith situr í bjálkakofa og heldur á málmbolla

Nýlega heimsótti ég Harmony, Pennsylvaníu, í Bandaríkjunum. Þar, undir hlyntrjánum, var prestdæmið endurreist Joseph Smith og Oliver Cowdery. Ég fór líka á heimilið þar sem Joseph og Emma Smith bjuggu. Ég stóð inni við gluggann og velti fyrir mér hvað Emma hugsaði þegar hún horfði út um gluggann.

Drottinn flutti Emmu mikilvægan boðskap með spámanni sínum, Joseph. Við getum lesið þennan boðskap í Kenningu og sáttmálum 25.

Í fyrsta lagi, þá kenndi Drottinn Emmu að hún ætti heima í áætlun hans. Hann minnti hana á að hún væri dóttir í ríki hans.

Í öðru lagi gaf Drottinn henni tilgang. Emma átti mikilvægan þátt í endurreisninni. Hún var beðin um að kenna ritningarnar og búa til fyrstu sálmabókina!

Að lokum kenndi Drottinn Emmu um sáttmálana hennar. Að halda sáttmála hjálpaði henni að finna andann, verða betri og hljóta leiðsögn fyrir líf sitt.

Drengur og stúlka sitja á kirkjubekk og taka sakramentisbrauðið

Ég vona að þið lærið hvernig helgiathafnir prestdæmisins og loforð sáttmála bjóða krafti Guðs inn í líf ykkar. Við getum öll haft aðgang að máttargjöf Guðs. Í hvert sinn sem við meðtökum sakramentið. Í hvert sinn sem við förum í musterið.

Tónlistarkastleikur

Emma Smith var beðin um að búa til fyrstu sálmabókina. Við syngjum enn sálma í dag! Skiptist á um að kasta peningi eða öðrum smáhlut á spilaborðið. Þegar það lendir á mynd, hugsið þá um lag um það efni. Syngið það síðan saman!

PDF-síða

Myndskreyting: Shawna J. C. Tenney